Innlent

Þingflokkur VG styður ekki breytingar á Icesve nema að vel athuguðu máli

Guðrfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG.
Guðrfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG.
Þingflokkur vinstri grænna segist styðja ríkisstjórnina. Hins vegar ætlar flokkurinn ekki að styðja nýjustu hugmyndir um að ljúka Icesave málinu, nema að vel athuguðu máli. Þingflokkurinn kemur saman klukkan hálfellefu í kvöld.

Þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingar funduðu í dag eftir að tilkynnt var um afsögn heilbrigðisráðherra.

Segja má að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi lagt líf ríkisstjórnarinnar að veði í Icesave málinu. Ekki sé hægt að treysta á stuðning minnihlutans við breytingum á fyrirvörum Alþingis og því verði ríkisstjórnin að treysta á sinn meirihluta - sem gæti orðið erfitt því málið er mjög umdeilt innan þingflokks Vinstri grænna.

Getur þú tryggt stuðning þingflokks vinstri grænna í Icesave málinu? „Það var eindreginn stuðningur við það þegar viðbrögð Breta og Hollendinga lágu fyrir, þegar þeir kynntu okkur sínar hugmyndir. Fyrir tíu dögum síðan að vinna áfram í því máli og ég held að sá stuðningur sé til staðar enn," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG.

Formaður þingflokks Vinstri grænna vill þó ekki lýsa yfir stuðningi við mögulegum breytingum á fyrirvörum Alþingis að svo stöddu.

„Ég ætla að skoða það með opnum huga eins og við öll. Það er verkefni' framundan. úrslitaatriðið er líka að málið fái lýðræðislega og þingræðislega meðferð," segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG.

Er einhver tími til að fara í aðra umferð með Icesave málið? „Við förum aldrei í aðra umferð frá því í sumar. það þarf að skoða málið vel eins og mýmörg mál sem liggja á borðinu. það er verkefnið núna. Ríkisstjórnin þarf svo sannanlega ekki að falla á þessu máli eins og Ögmundur hefur tekið skýrt fram í dag. við ætlum að halda þessu. við í VG erum einhuga um að halda þessu ríkisstjórnarsamstarfi áfram," segir Guðríður.

Hangir líf ríkisstjórnarinnar á bláþræði? „Nei, það gerir það alls ekki. Það var hver einn og einasti þingmaður og ráðherra sammála um að við viljum að þessi ríkisstjórn haldi áfram og það er eindreginn stuðningur við það. Það er ekkert vandamál uppi að því tagi," segir Steingrímur.


Tengdar fréttir

Afsögnin kemur ekki á óvart

„Mín viðbrögð eru þau að ég er nú bara að heyra af þessu fyrst núna," segir Þráinn Bertelsson þingmaður aðspurður um viðbrögðin við afsögn Ögmundar Jónassonar úr ríkisstjórn.

Ögmundur að biðjast lausnar?

Orðrómur er uppi um að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra muni segja af sér ráðherradómi vegna andstöðu sinnar við Icesave málið. Hann hitti Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á fundi í Stjórnarráðinu nú í hádeginu.

Stjórnin fellur ef ekki næst samstaða um Icesave-málið

Náist ekki samstaða um lyktir Icesave-málsins innan ríkisstjórnarflokkanna í vikunni er ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt. Þetta er mat Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hefur misst alla þolinmæði vegna málsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Nýr Icesave samningur í burðarliðnum

Fréttastofan hefur fyrir því heimildir að unnið hafi verið á bak við tjöldin að drögum að nýjum Icesave samningi við Hollendinga og Breta. Stjórnvöld leita leiða til nýrrar lagasetningar sem væntanlega voru ræddar á þingflokksfundum í dag og ríkisstjórnarfundi sem hófst klukkan sex.

Sigmundur segir Norðmenn til í risalán til Íslendinga

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins segir að Norski miðflokkurinn, systurflokkur Framsóknarflokksins, sé búinn að opna á að Íslendingum verði lánaðar verulegar upphæðir, allt að 2000 milljörðum íslenskra króna í gegnum tvíhliða samninga.

Ríkisráðsfundur á morgun

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum á morgun fimmtudag. Á fundinum lætur Ögmundur Jónasson af embætti heilbrigðisráðherra. Fundurinn hefst klukkan 11:45.

Afsögn Ögmundar kom á óvart - fundar með Steingrími

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að afsögn Ögmundar Jónassonar hafi komið sér á óvart. Hún segir að Ögmundur hafi beðið um fundinn í morgun. Jóhanna segir að ekki sé búið að velja eftirmann Ögmunds, fyrst verði hún að ræða við Steingrím J. Sigfússon formann VG en fundur þeirra hófst klukkan eitt.

Þingflokkur VG fundar vegna afsagnar

Þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna eru á leiðinni á þingflokksfund. Þar verður væntanlega rætt um afsögn Ögmundar Jónassonar, sem sagði af sér sem heilbrigðisráðherra nú í hádeginu.

Óvíst með ákvörðun um nýjan ráðherra

Óvíst er hvort þingflokkur Vinstri grænna taki ákvörðun um það á fundi sínum í kvöld hver verður eftirmaður Ögmundar Jónassonar í embætti heilbrigðisráðherra.

Ríkisstjórnarfundur klukkan sex

Boðað hefur verið til fundar í ríkisstjórn Íslands í dag klukkan sex. Þar verður væntanlega farið yfir mál dagsins en Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði af sér í hádeginu. Þingflokkar Samfylkingar og VG hittast á þingflokksfundum í dag. Fundur VG hefst klukkan tvö og samfylkingarmenn hittast klukkan fjögur.

Ögmundi augljóslega stillt upp við vegg

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina vera komna í öngstræti og verði í raun að víkja. Hann furðar sig á því að Ögmundur Jónasson hafi sagt af sér ráðherraembætti og gefur sér að hann hafi verið beittur þrýstingi. Núna sé eini maðurinn sem er í takti við þjóðina í Icesavemálinu farinn úr ríkisstjórn.

Framsóknarmenn með tillögur í lánamálum Íslendinga

Framsóknarmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þórhallsson voru staddir í Stjórnarráðinu á sama tíma og Ögmundur Jónasson sagði sig úr ríkisstjórninni. Höskuldur Þórhallsson varaformaður flokksins vildi lítið tjá sig um málið í samtali við vísi og vísaði á formanninn Sigmund Davíð. Höskuldur sagði þó að Ögmundur væri maður að meiri að hafa hætt í stjórninni.

Mikið uppnám innan Samfylkingarinnar vegna afsagnar

Þingflokkur Samfylkingarinnar er í miklu uppnámi eftir að Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra í hádeginu í dag. Þá er mikill undirliggjandi pirringur af hálfu flokksins vegna ákvarðanna Vinstri grænna undanfarið í orkumálu samkvæmt heimildum Vísis. Vinstri grænir sitja núna á þingflokksfundi en Samfylkingin fundar klukkan fjögur.

Of mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu

Ögmundur Jónasson, fráfarandi heilbrigðisráðherra, telur að verið sé að skera of mikið niður í heilbrigðiskerfinu. Hann segist ekki hafa verið að forðast fyrirhugaðan niðurskurð þegar hann baðst lausnar í dag.

Farnir af fundi

Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason eru farnir af þingflokksfundi VG sem nú stendur yfir en fundurinn er talinn geta skorið úr um hvort ríkisstjórnarsamstarfið við Samfylkinguna haldi.

Ögmundur hættur í ríkisstjórninni

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði af sér að loknum fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðinu fyrir stundu. Um leið lýsti hann yfir eindregnum stuðningi við ríkisstjórn Samfylkingar og VG.

Bessastaðir í biðstöðu hjá Jóhönnu

Líf ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði og stendur og fellur með því hvort að þingflokkur VG samþykkir að fylkja sér að baki nýrrar breytingatillögu Icesave sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á næstu dögum. Fáist ekki stuðningur herma heimildir fréttastofu að Jóhanna Sigurðardóttir muni ganga á fund forseta Íslands og krefjast lausnar.

Jóhönnu veitt umboð til að ljúka Icesave málinu

„Forsætisráðherra var veitt afdráttarlaust umboð þingflokksins til að halda áfram og ljúka Icesave málinu,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, en rúmlega tveggja klukkustunda fundi þingflokksins lauk á sjötta tímanum í dag.

Þingflokkurinn vill halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram

Steingrímur J. Sigfússon fjármálraáðherra og formaður VG sagði að loknum þingflokksfundi að allir þingmenn og ráðherrar hefðu lagt á það áherslu að ríkisstjórnarsamstarfinu yrði haldið áfram. Hann sagðist sleginn yfir ákvörðun Ögmundar Jónassonar sem hefur sagt sig úr ríkisstjórn en sagðist jafnframt virða ákvörðunina. Steingrímur sagði þingflokkinn ákveða hver yrði eftirmaður Ögmundar og það yrði gert fljótlega. ÞIngflokkur VG ætlar að funda aftur seint í kvöld.

Pólitísk endalok Jóhönnu

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, telur brotthvarf Ögmundar Jónassonar sem heilbrigðisráðherra vera ótvírætt vantraust á hæfileika Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar. Björn telur að nú sé komið að pólitískum endalokum Jóhönnu.

Þingflokksfundur hafinn hjá VG

Þingmenn VG sitja nú á fundi sem boðað var til í framhaldi af afsögn Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra í hádeginu. Fundurinn hófst upp úr klukkan tvö og vildu þingmenn ekkert tjá sig við fjölmiðla áður en þeir gengu á fundinn.

Fundi ríkisstjórnar lokið - sátt um næstu skref

„Það er full sátt í ríkisstjórninni um það að fara áfram með þetta mál og ná ásættanlegri niðurstöðu sem við förum væntanlega með fyrir þingið á fyrstu dögum þingsins,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi á áttunda tímanum í kvöld. Hún og Steingrímur ræddu við blaðamenn fyrir utan stjórnarráðið. Þau vildu ekki ræða efnislega um Icesvae og drög að nýju samkomulagi við Breta og Hollendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×