Múrinn kom í veg fyrir blóðsúthellingar 9. nóvember 2009 01:00 Berlínarbúar minntust þess um helgina að tuttugu ár eru í dag liðin frá því Berlínarmúrinn var opnaður.Nordicphotos/AFP „
Þetta var hræðilegt því ég áttaði mig á því að flokkurinn og ríkisstjórnin höfðu brugðist mér og að félagar mínir stæðu ekki með mér,“ segir Harald Jäger, austur-þýski landamæravörðurinn sem fyrstur opnaði hlið á Berlínarmúrnum að kvöldi 9. nóvember 1989. Hann segist vera ánægður núorðið með frumkvæðið sem hann tók þetta kvöld, en á sínum tíma var hann afar ósáttur við rás atburðanna. „Hugmyndaheimur minn féll algerlega saman.“ Mannfjöldinn beið í ofvæni eftir að komast yfir. Günter Schabovski, upplýsingafulltrúi austur-þýsku stjórnarinnar, hafði fyrir mistök lýst því yfir að fólki væri frjálst að fara ferða sinna. Í reynd átti það ferðafrelsi ekki að taka gildi fyrr en daginn eftir. Jäger var nýbúinn á vaktinni sinni við landamærahliðið á Bornholmer Strasse í Berlín og ætlaði að fá sér samloku. „Ég hafði varla fengið mér fyrsta bitann þegar ég heyrði þessi eftirminnilegu orð Schabovskis.“ Hann hafði engin fyrirmæli frá yfirboðurum sínum, en sá að engin leið yrði að hemja mannfjöldann nema opna hliðið upp á gátt. „Ég er engin hetja,“ segir hann. „Ég gerði aðeins það sem rétt var þetta kvöld.“ Eftir á að hyggja segist hann telja ákvörðun sína líklega hafa komið í veg fyrir að blóðsúthellingar yrðu. „Það er það eina sem ég get verið stoltur af. Að engu blóði var úthellt þetta kvöld, aðeins gleðitárum og köldum svita.“ - gb
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira