Verkfalli handritshöfunda í Hollywood að ljúka 4. febrúar 2008 08:11
Skriður er nú kominn á samningaviðræður handritshöfunda og kvikmyndaframleiðslufyrirtækja í Hollywood. Töluverð bjartsýni ríkir í báðum herbúðum um að samkomulag sé í augsýn, jafnvel innan viku. Óformlegar þreifingar hafa verið í gangi undanfarnar vikur meðal deiluaðila og kvisast hefur út að í þeim hafi stórum hindrunum fyrir nýjum samning verið rutt úr vegi. Verkfall handritshöfunda er nú að sigla inn í fjórða mánuðinn. Framleiðsla á sjónvarpsþáttum hefur legið niðri svo gott sem frá upphafi verkfallsins en nú fer það að hafa áhrif á stórmyndagerðina í Hollywood fyrir sumarmarkaðinn í ár. Framleiðendur eru því áfjáðir í að ljúka þessu verkfalli sem fyrst. Samkvæmt frétt í blaðinu New York Times um helgina komust aðilar að samkomulagi í meginatriðum á fundi sem haldinn var á föstudag en eftir á að ganga frá orðalagi hans og ýmsum öðrum atriðum. Það voru einkum greiðslur fyrir efni sem dreift er á netinu sem aðilar voru ósammála um en niðurstaða hefur fengist um hvernig þeim skuli háttað. Samkvæmt heimildum New York Times er reiknað með að samkomulagið verði lagt fyrir tíu þúsund meðlimi samtaka rithöfunda í þessari viku.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Samþykktu að víkja liðhlaupum úr Sjálfstæðisflokknum úr nefndum og ráðum Innlent Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Innlent Ekki hættur í Samfylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Framsókn Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent Skárri staða í Álasundi Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Sjá meira