Enski boltinn

Jólainnkaupalisti Manchester City

Buffon
Buffon NordicPhotos/GettyImages

Eigendur Manchester City ætla sér stóra hluti með liðið í framtíðinni og hvergi verður sparað til að koma liðinu í fremstu röð.

Talið er að Mark Hughes sé búinn að setja draumaliðið sitt niður á blað og fá blessun forríkra eigenda til að fara út og kaupa bestu mögulegu leikmenn í hverja stöðu.

Breska blaðið Daily Telegraph hefur varpað fram nokkrum hugmyndum um hvernig Hughes gæti verslað í janúar og næsta sumar, en þar er að finna ansi stór nöfn.

Markvörður:

Gianluigi Buffon

Markvörður hjá Juventus

Metinn á: 60 milljónir punda

Líkur á kaupum: 7/10

Hughes vill reyndan markvörð í lið sitt og þeir verða ekki mikið reyndari en Buffon. Þessi ítalski markvörður hefur verið einn sá besti í heiminum undanfarin ár.

Heyrst hefur að honum yrði boðinn samningur sem myndi færa honum 240,000 pund í vikulaun og Buffon sjálfur hefur sagt að hann myndi líklega skrifa undir strax ef slíkt tilboð kæmi.

Óvíst er að Juventus vilji þó sleppa honum.

Varnarmenn
NordicPhotos/GettyImages
Ashley Cole

Bakvörður hjá Chelsea

Metinn á: 20 milljónir punda

Líkur á kaupum: 5/10

Cole hefur spilað vel undir stjórn Luiz Felipe Scolari þar sem hann fær að sækja meira en áður. Það er því ólíklegt að Chelsea vilji láta hann fara, en hafa ber í huga að hann stakk af frá Chelsea út af deilum um 5,000 pund til eða frá í vikulaun. Það er aldrei að vita hvað hann segði ef City opnaði veskið.

John Terry

Miðvörður hjá Chelsea

Metinn á: 40 milljónir punda

Líkur á kaupum: 1/10

City hefur verið orðað við flesta bestu leikmenn heims, en óvíst er að félagið nái að krækja í Herra Chelsea. City hefur hinsvegar fengið á sig mikið af mörkum og því er ekki ólíklegt að félagið væri tilbúið að punga út hárri summu fyrir mann á borð við Terry.

Kolo Toure

Miðvörður hjá Arsenal

Metinn á: 5 milljónir punda

Líkur á kaupum: 9/10

Toure hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal undanfarið þó vörn liðsins hafi ekki verið mjög sannfærandi. Talið er að Arsene Wenger sé tilbúinn að selja Toure og ætli sér að kaupa varnarmann sjálfur í janúar, en þó gæti verið að William Gallas sé á undan honum í röð þeirra sem eru á leið frá Emirates.



Daniel Alves


Bakvörður hjá Barcelona

Metinn á: 35 milljónir punda

Líkur á kaupum: 5/10

Alves hefur lengi verið í sigtinu hjá Chelsea en hann gekk í raðir Barcelona í sumar frá Sevilla fyrir um 25 milljónir punda. Alves myndi líklega finna sig vel með þeim löndum sínum sem fyrir eru hjá City. Alves hefur átt sinn þátt í ágætum viðsnúningi Barcelona á leiktíðinni, en spurningin er hvort Barcelona væri til í að græða góðan pening á því að selja hann strax. Miðjumenn
AFP
Lassana Diarra

Miðjumaður hjá Portsmouth

Metinn á: 18 milljónir punda

Líkur á kaupum: 10/10

Portsmouth þarf nauðsynlega á peningum að halda og City vantar öflugan varnarsinnaðan miðjumann. Diarra hefur alltaf talað um að sig langaði til að spila með stórliði og því eru taldar miklar líkur á að City næli í hann fljótlega.



Xabi Alonso


Miðjumaður hjá Liverpool

Metinn á: 15 milljónir punda

Líkur á kaupum: 7/10

Alonso var nánast búinn að pakka niður í tösku í sumar og var á leið til Juventus, en ekkert varð úr því af því Benitez var ekki tilbúinn að lækka verðmiðann. Verðmiðinn verður hinsvegar ekkert vandamál hjá City, en Alonso varð aftur mikilvægur leikmaður Liverpool eftir að félaginu mistókst að krækja í Gareth Barry í sumar. Liverpool á þó nóg af miðjumönnum og vantar eflaust pening til að versla fleiri leikmenn í janúar.

Kaka

Miðjumaður hjá AC Milan

Metinn á: 50 milljónir punda

Líkur á kaupum: 4/10

Það væri ekki amalegt fyrir auðmennina sem eiga City að vera með ríkjandi knattspyrnumann ársins í sínum röðum og maður eins og Kaka væri ekki í vandræðum með að fylla í sæti. Milan-liðið er hlaðið stjörnum sem eru komnar á síðustu metrana og því gæti verið ágætis ráðstöfun fyrir Berlusconi og félaga að fá fúlgu fjár frá City fyrir Brasilíumanninn. Framherjar
NordcPhotos/GettyImages

Lukas Podolski

Framherji hjá Bayern

Metinn á: 15 milljónir punda

Líkur á kaupum: 7/10

Podolski hefur staðið sig mjög vel með þýska landsliðinu undanfarin ár, en hann hefur mátt þola mikið mótlæti síðan hann gekk í raðir Bayern. Hann fékk nóg á dögunum og sagðist ætla að fara frá þýska félaginu. Podolski er fínn framherji og hræódýr ef tekið er mið af metnaði City-manna.

Sergio Aguero

Framherji hjá Atletico Madrid

Metinn á: 45 milljónir punda

Líkur á kaupum: 7/10

Aguero er nýjasti leikmaðurinn sem kallaður hefur verið nýr Maradona, en ef það fer út um þúfur getur þessi hæfileikapiltur státað af að eiga barn með dóttur knattspyrnugoðsins.

Aguero hefur fyllt skarð Fernando Torres með prýði hjá Atletico og er mjög eftirsóttur um alla Evrópu. Það kostar að minnsta kosti 40 milljónir punda að fá Aguero lausan frá Atletico - en það ætti ekki að vera vandamál fyrir City.

Roque Santa Cruz

Framherji hjá Blackburn

Metinn á: 12 milljónir punda

Líkur á kaupum: 9/10

Santa Cruz skrifaði undir nýjan samning við Blackburn í upphafi tímabilsins, en ekki þyrfti að koma á óvart ef hann langaði að spila aftur undir stjórn Mark Hughes. Hughes var maðurinn sem fékk Santa Cruz til Englands og hann vantar traustan markaskorara. Þar fyrir utan gæti Blackburn eflaust notað peningana sem fengjust fyrir framherjann - ekki síst ef liðið verður í fallbaráttu í vetur eins og útlit er fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×