Erlent

Danir ánægðir með reykingabann á vinnustöðum

Átta af hverjum tíu Dönum eru ánægðir með reykingarbann á vinnustöðum sínum sem nýlega var sett í landinu.

Þetta kemur fram í könnun sem gerð var meðal tæplega 3.000 launþega í landinu. Meðal þeirra sem reykja daglega sögðust 63 prósent vera ánægðir eða mjög ánægðir með bannið.

Um helmingur þeirra sem tóku þátt í könnuninni er á þeirri skoðun að vinnugleði hafi aukist á vinnustað sínum í kjölfar bannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×