Innlent

Enn óvissa með áfangaheimili

Fyrirhugað áfangaheimili verður starfrækt í Hólavaði 1-11 í Norðlingaholti.
Fyrirhugað áfangaheimili verður starfrækt í Hólavaði 1-11 í Norðlingaholti.

Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að beðið sé eftir að málefni fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði skýrist og því sé enn óvissa um hvort og hvenær starfsemi þess hefjist.

Fyrirhugað er að í haust opni áfangaheimili í Hólavaði 1 til 11 í Norðlingaholti á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar. Vísir greindi frá því fyrr í mánuðinum að eigandi raðhúsalengjunnar við Hólavað var lýstur gjaldþrota í apríl. Einn kröfuhafa, Byr Sparisjóður, leysti eignir fyrirtækisins til sín.

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, sagði í samtali við Vísi 20. júní óviðeigandi að ekki væri búið að opna heimilið. Félagsmálaráðuneytið mun greiða fyrir húsnæðið en daglegur rekstur heimilisins verður í höndum velferðarsviðs Reykjavíkur.

SÁÁ og Vinstri-grænir gagnrýndu ákvörðun velferðarráðs Reykjavíkur að ganga til samninga við fyrirtækið þar sem tilboð SÁÁ var lægra. Við val á samstarfsaðila hafði talsverð áhrif að Heilsuverndarstöðin hafði til taks ,,afar hentugt húsnæði fyrir umrædda starfsemi."

Fyrir hálfum mánuði afhentu íbúar í Norðlingaholti Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra, ríflega 300 undirskriftir íbúa í hverfinu sem andsnúnir eru staðsetningu áfangaheimilisins. Þeir gagnrýndu borgaryfirvöld fyrir að hafa ekki kynnt fyrirhugað heimili og starfsemina fyrir sér.




Tengdar fréttir

Þorleifur: Borgarráð var blekkt

Þorleifur Gunnlaugsson segir að borgarráð hafi verið blekkt þegar yfirlýsing frá Heilsuverndarstöðinni og Hag var lögð fyrir ráðið 26. júní síðastliðinn.

Segir sviðsstjóra pólitíska aðstoðarkona

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, segir Jórunni Frímannsdóttir hafa fengið sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkur með sér í ,,pólitískan slag" en saman hafa þær skrifað greinar um búsetuúrræði með félagslegum stuðningi.

Áfangaheimili opnar ekki nema húsnæði verði tryggt

Velferðarsvið Reykjavík hefur ekki lokið við gerð samnings við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Hólavaði í Norðlingaholti þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvort umrætt húsnæði sé til ráðstöfunar þar sem það er nú í eigu þrotabús.

Afhenda borgarstjóra undirskriftalista

Íbúar í Norðlingaholti afhenda Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra undirskriftalista í dag með mótmælum yfir 300 íbúa í nágrenni við fyrirhugað áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í hverfinu í haust.

Eðlilega staðið að samningi um áfangaheimili

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar telur málefnalegar forsendur liggja að baki ákvörðun velferðarráðs að semja við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um áfangaheimili fyrir einstaklinga eftir meðferð.

Óvissa með húsnæði áfangaheimilis

Eigandi húsnæðis sem Heilsuverndarstöðin ætlar að nýta sem áfangaheimili í raðhúsalengju í Norðlingaholti var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl. Því er enn óvissa um hvort starfsemin hefjist á réttum tíma.

Undirskriftalistar afhentir í vikunni

Undirskriftalistar íbúa í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust í Hólavaði verða afhentir borgaryfirvöldum á miðvikudaginn.

Veðhafi leysir fyrirhugað áfangaheimili til sín

Byr sparisjóður leysir líklega í dag til sín eignir þrotabús Í skilum sem meðal annars á fasteignirnar Hólavað 1 til 11 en Reykjavíkurborg hyggst opna þar áfangaheimili í haust.

Málaferli erfið leið fyrir SÁÁ

Ari Matthíasson framkvæmdastjóri SÁÁ segir að samtökin eigi mikið undir samstarfi við Reykjavíkurborg og ríkið sem kaupi ákveðna þjónustu af samtökunum. Af þeim sökum sé ,,erfitt að standa í stjórnsýslukærum gagnvart þessum aðilum."

Undirskriftasöfnun hafin gegn áfangaheimili

Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust. ,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir.

Óviðunandi bið eftir húsnæði fyrir Byrgisfólk

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir óviðunandi að ekki skuli vera búið að opna heimili fyrir fyrrverandi vistmenn í Byrginu. Meðferðarheimilinu var lokað í kjölfarið að Kompásþáttar Stöðvar 2 um Byrgið var sýndur rétt fyrir jólin árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×