Eðlilega staðið að samningi um áfangaheimili 12. júní 2008 11:26
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar telur málefnalegar forsendur liggja að baki ákvörðun velferðarráðs að semja við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um áfangaheimili fyrir einstaklinga eftir meðferð. Þá tekur endurskoðunin jafnframt undir þau sjónarmiðið um að ávallt skuli gæta fjárhagslegrar hagkvæmni við innkaup og val á samstarfsaðilum. Forsaga málsins er að í kjölfar ákvörðunar velferðarráðs um ganga til samstarfs við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun óskaði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, eftir að innri endurskoðun fjallaði um málið. Þorleifur taldi óeðlilega staðið að samningunum í ljósi þess að ekki var gengið að lægsta tilboðinu sem var rúmlega 20 prósent lægra en tilboð Heilsuverndarstöðvarinnar/Alhjúkrunar. ,,Innri endurskoðun er ekki skylt að fara fyrir mál að þessu tagi en gerði það engu að síður. Ennfremur óskaði endurskoðun eftir rökstuðningi frá velferðarsviði og segir það væntanlega eitthvað um málið," segir Þorleifur.Jórunn hæf til að fjalla um máliðÞorleifur Gunnlaugsson er borgarfulltrúi Vinstri grænna og situr í velferðarráði Reykjavíkur.Vegna fréttaflutnings af ákvörðun velferðarráðs ákvað innri endurskoðun að auki að skoða tengsl Jórunnar við fyrirtækið. Niðurstaðan er að ,,enginn fótur sé fyrir því sem gefið er í skyn að um óeðlileg hagsmunatengsl sé að ræða." Árið 2006 hafi Jórunn selt Liðsinni ehf. vefsíðuna doktor.is og síðar hafi Liðsinni verið keypt af Heilsuverndarstöðinni. Í greinargerðinni segir að tvö ár séu liðin frá viðskiptunum og að Jórunn hafi engin fjárhagsleg tengsl við fyrirtækið í dag. Jórunn segir að í greinargerðinni sé vísað á bug þeim ásökunum sem hún hafi þurft að þola frá Þorleifi vegna samningsins. ,,Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi og fyrrverandi stjórnarmaður SÁÁ, sem bauð í umrædda þjónustu, kaus að draga í efa heilindi mín í þessu máli með dylgjum um hagsmunaárekstra sem ekki á við nokkur rök að styðjast. Innri endurskoðun hefur nú staðfest að aðdróttanir borgarfulltrúans voru með öllu rangar," segir í tilkynningu Jórunnar.Þorleifur segir rétt að hann sé fyrrum stjórnarmaður SÁÁ en hafi jafnframt verið virkur á fleiri stöðum. ,,Meðal annars í stjórn Dyngjunnar sem er áfangaheimili fyrir konur og stjórn Takmarksins sem áfangaheimili fyrir karla. Ég hef aldrei þegið krónu fyrir störf mín í málaflokknum."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira