Parry ætlar ekki að segja af sér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. apríl 2008 11:02 Rick Parry, framkvæmdarstjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Rick Parry, framkvæmdarstjóri Liverpool, ætlar ekki að segja starfi sínu lausu eins og annar eiganda félagsins, Tom Hicks, hefur farið opinberlega fram á. Parry segir að það sé undir stjórn félagsins komið að biðja um afsögn hans og það hefur hún ekki gert. Stjórnin er skipuð sex mönnum, þeirra á meðal Parry sjálfum. Hann hefur hinn eiganda félagsins, George Gillett, á sínu bandi sem og son hans Foster en báðir sitja þeir í stjórn félagsins. David Moores, fyrrum eigandi Liverpool, situr einnig í stjórn og styður hann Parry. Hicks og sonur hans, Tom yngri, sitja einnig í stjórninni en eru greinilega í minnihluta hvað þetta mál varðar. „Þetta er mál sem stjórn félagsins þarf að takast á við. Ég svara til stjórnarinnar og þetta er eitthvað sem stjórn félagsins hefur ekki rætt við mig um," sagði Parry. Liverpool var áður þekkt fyrir að halda öllum innanfélagserjum fyrir sig en eftir að Bandaríkjamennirnir Hicks og Gillett keyptu félagið hefur annað komið á daginn. Þeir talast ekki við í dag. „Ég vil bara gera mitt besta fyrir félagið. Félagið mun lifa þetta af og eru undanúrslit í Meistaradeildinni framundan. Það er að mörgu að huga."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sjá meira