Erlent

Viðbúnaður á næsthæsta stig

Breska ríkisstjórnin lækkaði viðbúnaðarstigið í landinu í gær úr því fimmta – sem er hæst – niður í það fjórða.



Hæsta viðbúnaðarstig þýðir að búist er við hryðjuverkaárás á hverri stundu. Viðbúnaðarstigið í landinu var hækkað á laugardag eftir þrjú misheppnuð hryðjuverkatilræði í Lundúnum og Glasgow. Fjórða viðbúnaðarstig hefur verið í landinu síðan í ágúst 2006 sem þýðir að hryðjuverka­árásir eru taldar líklegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×