Erlent

Fimm létust í sjálfsmorðsárás

Fimm pakistanskir hermenn létust og nokkrir særðust í sjálfmorðsáras í Pakistan í gær. Bíll hlaðinn sprengiefnum keyrði inn í bílalest pakistanska hersins.



Árásin átti sér stað í norðvesturhluta landsins, nálægt landamærunum við Afganistan, þar sem talibanar og liðsmenn al-Kaída hryðjuverkasamtakanna halda til. Embættismenn í Pakistan telja að liðsmenn annarra hvorra samtakanna hafi staðið fyrir sjálfsmorðsárásinni.

Pakistan, sem er samherji Bandaríkjamanna í stríðinu gegn hryðjuverkum, hefur haldið úti níutíu þúsund manna herliði við landamæri Afganistans til að berjast gegn talibönum og al-Kaída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×