Erlent

Eldflaugar til Kaliningrad

Aðstoðarforsætisráðherrann er talinn líklegur eftirmaður Pútíns sem forseti Rússlands. Pútín lætur af embætti á næsta ári.
Aðstoðarforsætisráðherrann er talinn líklegur eftirmaður Pútíns sem forseti Rússlands. Pútín lætur af embætti á næsta ári. ap/fréttablaðið

Sergei Ívanov, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, hefur lýst því yfir að Rússar gætu komið upp aðstöðu til að skjóta upp eldflaugum í Kaliningrad, svæði á milli Litháen og Póllands. Þetta kemur fram á vef BBC.



Ívanov segir að hugmyndin tengist áformum Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og Tékklandi. En ríkisstjórn Rússlands telur að það gæti ógnað öryggi Rússlands ef Bandaríkjamenn koma upp eldflaugavarnarkerfi nálægt landamærum þess.



Ráðherrann segir að Rússar þurfi ekki að koma eldflaugunum fyrir í Kaliningrad ef Bandaríkjamenn taka boði þeirra um að nota ratsjárstöðvar í Aserbaídsjan og í Suður-Rússlandi í staðinn fyrir að byggja eldflaugavarnarkerfi í Tékklandi og Póllandi.



George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt að hugmynd Rússa sé „nýstárleg“ en að Bandaríkjastjórn muni halda sig við fyrri áætlanir sínar um að byggja eldflaugavarnarkerfið í Póllandi og Tékklandi. Bandaríkjastjórn hefur sagt að ekki sé verið að koma upp eldflaugavarnarkerfinu vegna hræðslu við árás frá Rússum heldur vegna mögulegra árása frá löndum eins og Íran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×