Enski boltinn

Upphitun fyrir Arsenal - United

Risarnir mætast á morgun
Risarnir mætast á morgun NordicPhotos/GettyImages

Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er viðureign Arsenal og Manchester United á Emirates á morgun, en leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur beint á Sýn 2 og hefst útsending klukkan 12:25.

Hjá Arsenal eru allir heilir nema þeir Robin Van Persie og Philippe Senderos sem hafa verið frá í nokkurn tíma. Til greina kemur að þeir Eduardo og Gilberto fái að byrja leikinn á morgun.

Manchester United fær þá Louis Saha og Michael Carrick aftur inn í hópinn eftir meiðsli, þar sem Saha er að jafna sig á hnémeiðslum og Carrick er kominn til æfinga á ný eftir meiðsli á olnboga.

Hér fyrir neðan má lesa hvað stjórarnir sögðu fyrir leikinn.

Arsene Wenger:

"Þetta er risaleikur og allir vilja sjá hvaða lið er best í augnablikinu. Ég hef mikla trú á mínu liði og ég er viss um að við getum sett pressu á þá og unnið leikinn. Við viljum nýta þetta tækifæri til að koma okkur í vænlega stöðu á toppi deildarinnar og verðum að vera þolinmóðir og sterkir andlega, því ef kemur eitthvað óðagot á liðið er voðinn vís."

Sir Alex Ferguson:

"Þetta verður mikið taugastríð eins og stórleikir eru alltaf og ég á von á því að boðið verði upp á mikinn hraða. Það er allt of snemmt að segja til um hvaða lið eru sigurstranglegust í deildinni því í þessari deild getur maður tapað stigum á móti hvaða liði sem er. Við höfum verið að spila vel undanfarið líkt og Arsenal og því er þessi leikur sérstaklega áhugaverður. Hver sá sem á miða á leikinn hlýtur að hlakka mikið til hans," sagði Ferguson.

Leikurinn á morgun verður viðureign tveggja sigursælustu liða í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester United hefur unnið 375 leiki og fengið 1258 stig. Þá hefur liðið unnið níu meistaratitla.

Arsenal hefur unnið 316 leiki, fengið 1107 stig og unnið þrjá titla. Liðið hefur ekki tapað leik í 17 deildarleikjum í röð sem er lengsta rispa án taps í deildinni. Manchester United hefur hinsvegar unnið flesta leiki allra í röð - átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×