Bush segir árangur í Írak harla blendinn 13. júlí 2007 03:15 „Flókið og afar erfitt“ Bandarískir og íraskir hermenn í Írak. MYND/AP
Þótt demókratar á Bandaríkjaþingi hafi ekki fengið því framgengt að bandaríski herinn verði kallaður heim frá Írak tókst þeim engu að síður að ná því fram að George W. Bush forseti verður að gera þinginu reglulega grein fyrir því hvernig miðað hefur í Írak. Í gær kynnti Bush í fyrsta sinn slíka skýrslu á þinginu, og þar kemur fram að árangurinn hafi verið harla blendinn. Meðal annars „vanti nokkuð upp á“ að pólitískar sættir hafi tekist milli andstæðra fylkinga í Írak, öryggisástandið er sagt vera „flókið og afar erfitt“ og efnahagsástandið „misjafnt“. Búist er við „hörðum átökum“ í sumar. Í skýrslunni, sem er 32 blaðsíður að lengd, er fullyrt að viðunandi árangur hafi náðst í átta viðmiðunaratriðum, óviðunandi í öðrum átta, en blendinn árangur í tveimur atriðum. Síðasta vetur tilkynnti Bush að þúsundir bandarískra hermanna yrðu sendar til Íraks í viðbót við það lið sem fyrir var. Einungis fáar vikur eru þó síðan allt þetta viðbótarherlið var komið til Íraks, og er tekið fram í skýrslunni að þessi nýja herferð til að bæta öryggisástandið í Írak sé því einungis „rétt að hefjast“. Í skýrslunni er spjótum beint að þeim bandarísku stjórnmálamönnum, sem hvað mest hafa gagnrýnt hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Írak. Fullyrt er að erfiðara hafi reynst að ná fram pólitískum sáttum í Írak beinlínis vegna þess að „íraskir stjórnmálaleiðtogar hafi auknar áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi ekki skuldbundið sig gagnvart Írak til langframa“. Í skýrslunni eru Sýrlendingar jafnframt sakaðir um að styðja skipulagðar sjálfsmorðsárásir á vegum Al Kaída, sem sendir allt að 50 til 80 sjálfsvígsmenn til Íraks í hverjum mánuði. Einnig eru írönsk stjórnvöld sökuð um að veita öfgasamtökum fjárstuðning. Bush sagðist engu að síður jafn viss um það og áður að Bandaríkjamenn gætu á endanum náð þeim árangri sem að væri stefnt í Írak. Jafnframt ítrekaði hann að herinn yrði ekki kallaður heim fyrr en ástandið í Írak leyfði það, og „ekki vegna þess að skoðanakannanir segja það vera góða pólitík“. Demókratar, sem náðu meirihluta á Bandaríkjaþingi í vetur, eru enn að reyna að ná því fram að herinn verði kallaður heim innan tíðar. Frumvarp þess efnis er til umræðu í báðum deildum Bandaríkjaþings en Bush hefur heitið því að beita neitunarvaldi sínu á slík lög.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Fleiri fréttir Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Sjá meira