Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Eiður Þór Árnason skrifar 3. mars 2026 16:29 Natan Kolbeinsson, fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík. aðsend Fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík er sakaður um fjárdrátt og að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins. Málið hefur verið kært til lögreglu og steig formaðurinn til hliðar um helgina.
Upp komst um málið á laugardag við yfirferð á ársreikningi fyrir árið 2025 en til stóð að leggja hann fram á aðalfundi Viðreisnar í Reykjavík sem fram fór um helgina. Því var frestað þegar misræmi uppgötvaðist í bókhaldi. Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, staðfestir að hinn grunaði hafi millifært fjórar til fimm milljónir króna yfir á persónulega reikninga á árunum 2024 til 2026. Hann hafi viðurkennt brotin og nú þegar endurgreitt meirihluta fjárhæðarinnar. Hann hafi svo skuldbundið sig til að endurgreiða þær rúmlega 1,7 milljónir króna sem eftir standa. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða Natan Kolbeinsson, þáverandi formann Viðreisnar í Reykjavík. Hann er einnig alþjóðafulltrúi Viðreisnar og varamaður í stjórn RÚV fyrir hönd flokksins. Natan hefur áður gerst sekur um fjárdrátt og var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi árið 2017 fyrir að hafa dregið sér fé úr sjóðum Landssambands æskulýðsfélaga en hann var um tíma formaður og gjaldkeri sambandsins. Málið var kært til lögreglu í dag Talið er að fjárdrátturinn hjá Viðreisn hafi byrjað árið 2024 en hann hafði endurgreitt fjármunina sem hann tók úr sjóðum Viðreisnar í Reykjavík það ár áður en fjárhagsárið rann út. Uppgötvaðist fjárdrátturinn því ekki við yfirferð á ársreikningi þess árs. Svanborg segir málið afskaplega leiðinlegt og að stjórn Viðreisnar í Reykjavík hafi í gær ákveðið að kæra málið til lögreglu. Kæra hafi svo verið lögð fram í dag. Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar.Viðreisn „Það kemur í ljós þegar verið er að setja upp ársreikninginn, við reglubundið eftirlit, að reikningarnir stemma ekki. Þá fórum við náttúrulega að skoða þetta nánar og þá kom í ljós að það var trúnaðarmaður innan þessa félags sem hafði dregið að sér fé,“ segir hún um atvik helgarinnar. Hann sé nú búinn að segja sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir Viðreisn. Mögulega áður haft aðgang að öðrum reikningi Svanborg bætir við að málið varði opinbert fé og frjáls framlög félagsmanna sem þurfi að fara vel með. Viðreisn fær fjárframlög frá Reykjavíkurborg líkt og önnur stjórnmálaöfl í borgarstjórn. Nýr formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík var kjörinn á aðalfundi félagsins á sunnudag. Fundarmenn voru ekki upplýstir um hinn grunaða fjárdrátt þar sem enn átti eftir að upplýsa stjórnina um málið, að sögn Svanborgar. Hún viti ekki til þess að fyrirætlað sé að ráðast í athugun á öðrum reikningum Viðreisnar í kjölfar málsins. Ekki hafi vaknað grunur um frekara misferli. „Hann hefur bara verið með prókúru á þessum reikningi, eftir því sem ég best veit.“ Svanborg segir að hann hafi þó mögulega áður verið með prókúru á einhverjum öðrum reikningi. Hún ítrekar að málið sé mjög leiðinlegt og sé núna komið í ferli hjá lögreglu. Fréttin hefur verið uppfærð. Ekki hefur náðst í Natan Kolbeinsson.
Viðreisn Lögreglumál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira