Erlent

Bush segir árangur í Írak harla blendinn

„Flókið og afar erfitt“ Bandarískir og íraskir hermenn í Írak.
„Flókið og afar erfitt“ Bandarískir og íraskir hermenn í Írak. MYND/AP

Þótt demókratar á Bandaríkjaþingi hafi ekki fengið því framgengt að bandaríski herinn verði kallaður heim frá Írak tókst þeim engu að síður að ná því fram að George W. Bush forseti verður að gera þinginu reglulega grein fyrir því hvernig miðað hefur í Írak.

Í gær kynnti Bush í fyrsta sinn slíka skýrslu á þinginu, og þar kemur fram að árangurinn hafi verið harla blendinn. Meðal annars „vanti nokkuð upp á“ að pólitískar sættir hafi tekist milli andstæðra fylkinga í Írak, öryggisástandið er sagt vera „flókið og afar erfitt“ og efnahagsástandið „misjafnt“. Búist er við „hörðum átökum“ í sumar.

Í skýrslunni, sem er 32 blaðsíður að lengd, er fullyrt að viðunandi árangur hafi náðst í átta viðmiðunar­atriðum, óviðunandi í öðrum átta, en blendinn árangur í tveimur atriðum.

Síðasta vetur tilkynnti Bush að þúsundir bandarískra hermanna yrðu sendar til Íraks í viðbót við það lið sem fyrir var. Einungis fáar vikur eru þó síðan allt þetta viðbótar­herlið var komið til Íraks, og er tekið fram í skýrslunni að þessi nýja herferð til að bæta öryggis­ástandið í Írak sé því einungis „rétt að hefjast“.

Í skýrslunni er spjótum beint að þeim bandarísku stjórnmálamönnum, sem hvað mest hafa gagnrýnt hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Írak. Fullyrt er að erfiðara hafi reynst að ná fram pólitískum sáttum í Írak beinlínis vegna þess að „íraskir stjórnmálaleiðtogar hafi auknar áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi ekki skuldbundið sig gagnvart Írak til langframa“.

Í skýrslunni eru Sýrlendingar jafnframt sakaðir um að styðja skipulagðar sjálfsmorðsárásir á vegum Al Kaída, sem sendir allt að 50 til 80 sjálfsvígsmenn til Íraks í hverjum mánuði. Einnig eru írönsk stjórnvöld sökuð um að veita öfgasamtökum fjárstuðning.

Bush sagðist engu að síður jafn viss um það og áður að Bandaríkjamenn gætu á endanum náð þeim árangri sem að væri stefnt í Írak. Jafnframt ítrekaði hann að herinn yrði ekki kallaður heim fyrr en ástandið í Írak leyfði það, og „ekki vegna þess að skoðana­kannanir segja það vera góða pólitík“.

Demókratar, sem náðu meirihluta á Bandaríkjaþingi í vetur, eru enn að reyna að ná því fram að herinn verði kallaður heim innan tíðar. Frumvarp þess efnis er til umræðu í báðum deildum Bandaríkjaþings en Bush hefur heitið því að beita neitunarvaldi sínu á slík lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×