Erlent

Samskiptin við suðumark

Morðið á fyrrum KGB-manninum hefur orsakað harðar deilur á milli Breta og Rússa, sem neita að framselja meintan morðingja Litvinenkos.
Morðið á fyrrum KGB-manninum hefur orsakað harðar deilur á milli Breta og Rússa, sem neita að framselja meintan morðingja Litvinenkos. MYND/AP

Yfirvöld í Bretlandi íhuga aðgerðir gegn rússnesku ríkisstjórninni eftir að saksóknarar í Rússlandi neituðu á mánudag að framselja fyrrum KGB-manninn Andrei Lugovoi, sem er grunaður um að hafa drepið Alexander Litvinenko í London í fyrra. Breska blaðið The Guardian greindi frá þessu í gær.

Meðal þeirra aðgerða sem utanríkisráðherra Bretlands, David Miliband, veltir fyrir sér er að reka rússneska diplómata úr landi og að hætta samvinnu við Rússa á ýmsum sviðum eins og viðskiptum, mennta- og félagsmálum og í baráttunni gegn hryðjuverkum. Talið er að Miliband greini ekki frá ákvörðun sinni fyrr en í næstu viku.

Yfirvöld í Bretlandi búa sig undir að stjórnvöld í Rússlandi svari í sömu mynt og reki breska diplómata úr landi. Sendiherra Breta í Moskvu, Tony Brenton, hefur nú þegar verið áreittur á götum Moskvu, og segir The Guardian að stjórnvöld í Rússlandi hafi staðið á bak við það. Auk þess hafa rússneskir embættismenn lokað skrifstofum breska menningar­ráðsins í Jekaterinburg.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti er að sögn The Guardian reiður yfir því að bresk stjórnvöld hafi ekki viljað framselja auðkýfinginn Boris Berezovsky sem er í útlegð í Bretlandi. Berezovsky hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti í Rússlandi og fyrir að hafa skipu­lagt valdarán gegn Pútín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×