Samskiptin við suðumark 13. júlí 2007 05:00 Morðið á fyrrum KGB-manninum hefur orsakað harðar deilur á milli Breta og Rússa, sem neita að framselja meintan morðingja Litvinenkos. MYND/AP
Yfirvöld í Bretlandi íhuga aðgerðir gegn rússnesku ríkisstjórninni eftir að saksóknarar í Rússlandi neituðu á mánudag að framselja fyrrum KGB-manninn Andrei Lugovoi, sem er grunaður um að hafa drepið Alexander Litvinenko í London í fyrra. Breska blaðið The Guardian greindi frá þessu í gær. Meðal þeirra aðgerða sem utanríkisráðherra Bretlands, David Miliband, veltir fyrir sér er að reka rússneska diplómata úr landi og að hætta samvinnu við Rússa á ýmsum sviðum eins og viðskiptum, mennta- og félagsmálum og í baráttunni gegn hryðjuverkum. Talið er að Miliband greini ekki frá ákvörðun sinni fyrr en í næstu viku. Yfirvöld í Bretlandi búa sig undir að stjórnvöld í Rússlandi svari í sömu mynt og reki breska diplómata úr landi. Sendiherra Breta í Moskvu, Tony Brenton, hefur nú þegar verið áreittur á götum Moskvu, og segir The Guardian að stjórnvöld í Rússlandi hafi staðið á bak við það. Auk þess hafa rússneskir embættismenn lokað skrifstofum breska menningarráðsins í Jekaterinburg. Vladimír Pútín Rússlandsforseti er að sögn The Guardian reiður yfir því að bresk stjórnvöld hafi ekki viljað framselja auðkýfinginn Boris Berezovsky sem er í útlegð í Bretlandi. Berezovsky hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti í Rússlandi og fyrir að hafa skipulagt valdarán gegn Pútín.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Sjá meira