Enski boltinn

Meiðsli Richards ekki alvarleg

NordicPhotos/GettyImages

Varnarmaðurinn Micah Richards ætti að verða klár í slaginn með enska landsliðinu í leikinn gegn Króötum í þessum mánuði þrátt fyrir að hafa meiðst á hné í bikarleik gegn Bolton í gærkvöld.

Óttast var að Richards hefði meiðst alvarlega en við skoðun kom í ljós að svo var ekki. Hann verður frá keppni í einhvern tíma en staða hans verður metin daglega á næstunni.

Richards er aðeins 19 ára gamall en hefur fest sig í sessi í enska landsliðinu í fjarveru Gary Neville.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×