Enski boltinn

Verður að slaka á kröfunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Phil Neville í leik með enska landsliðinu gegn Eistlandi í síðasta mánuði.
Phil Neville í leik með enska landsliðinu gegn Eistlandi í síðasta mánuði. Nordic Photos / Getty Images

Phil Neville óttast að fleiri gætu hætt að gefa kost á sér í enska landsliðið ef ekki verður slakað á þeim kröfum sem gerðar eru á leikmönnum sem spila reglulega með landsliðinu.

Jamie Carragher gaf það út í sumar að hann myndi ekki spila með landsliðinu framar og Paul Scholes hætti árið 2004. Báðir voru 29 ára þegar þeir hættu.

„Það kæmi mér ekki á óvart ef fleiri myndu ákveða að fara sömu leið. Ég hef sjálfur hugsað um það nokkrum sinnum,“ sagði Neville í samtali við fréttastofu BBC.

„Kröfurnar eru svo miklar að eitthvað verður að láta undan. En hvað mig varðar er það toppurinn að fá að spila með enska landsliðinu og þannig verður það áfram.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×