Enski boltinn

Eggert Gunnþór lék með Hearts í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eggert Gunnþór Jónsson í leik með U-21 landsliðinu.
Eggert Gunnþór Jónsson í leik með U-21 landsliðinu. Mynd/E. Stefán

Eggert Gunnþór Jónsson var kominn aftur í byrjunarlið Hearts eftir að hann var settur á bekkinn í síðasta leik liðsins.

Eggert lék allan leikinn og fékk gult spjald á 76. mínútu.

Christophe Berra skoraði sjálfsmark á 18. mínútu og kom Hibernian þannig yfir í leiknum. Christian Nade jafnaði svo metin á 46. mínútu en um grannaslag var að ræða þar sem bæði lið eru í Edinborg.

Hearts er í áttunda sæti deildarinnar með fimmtán stig eftir tólf leiki en Hibernian er í þriðja sæti með 22. Liðið er nú sex stigum á eftir toppliði Celtic og þremur á eftir Rangers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×