Stóryrði Sighvats koma Valgerði á óvart 9. mars 2007 06:30 Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir að sér komi á óvart viðbrögð Sighvats Björgvinssonar, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), við nýrri skýrslu þar sem lagt er til að stofnunin verði felld inn í utanríkisráðuneytið. „Ég ætla ekkert að munnhöggvast við Sighvat Björgvinsson í fjölmiðlum. Hann er forstöðumaður undirstofnunar ráðuneytisins og þar að auki sendiherra. Þannig að ég mun bara eiga fund með honum þegar hann kemur heim. En ég get að minnsta kosti sagt að þessi stóru orð sem hann notar koma mér á óvart.“ Þar vísar Valgerður í ummæli Sighvats í fjölmiðlum í gær þar sem hann segist ekki hafa vitað að þessar tillögur væru í undirbúningi og fordæmir hann vinnubrögð ráðuneytisins. Í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér í gær er ummælum Sighvats hafnað. Er meðal annars greint frá fundi Þorsteins Ingólfssonar sendiherra, sem stýrði skýrslugerðinni, með Sighvati og stjórnarformanni stofnunarinnar í nóvember. Þorsteinn segist hafa rætt um gerð skýrslunnar við Sighvat í tvígang frá þessum fundi. Í seinna skiptið greindi Þorsteinn Sighvati frá tveimur mögulegum leiðum í skýrslunni og þar hafi önnur verið sú að færa stofnunina undir ráðuneytið. Þorsteinn ingólfsson Sendiherra og einn höfunda skýrslu um ÞSSÍ. Björn Dagbjartsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri stofnunarinnar, segir skýrsluna skynsamlega og vel unna og undarlegt sé ef núverandi framkvæmdastjóra hafi dottið í hug að það ættu ekki að verða neinar breytingar. Björn, sem lét af starfi framkvæmdastjóra í lok árs 2000, hafði sjálfur lagt til að stofnunin yrði færð undir ráðuneytið að fordæmi hinna Norðurlandanna. „Það er orðið löngu tímabært að endurskoða lögin. Þau voru gjörsamlega úrelt orðin og hálfvandræði orðin að vinna eftir þeim.“ Í tilkynningu ráðuneytisins segir að markmið tillagnanna sé að ná betri heildarsýn á þróunarsamvinnu Íslands og draga úr hættu á tvíverknaði í rekstri og stjórnun. Björn dagbjartsson Fyrrverandi framkvæmdastjóri ÞSSÍ. Valgerður segist leggja skýrsluna fram einungis sem umræðugrundvöll og að hún muni ekki leggja fram frumvarp um slíkar breytingar á þessu þingi. Þá ítrekar hún að starfsöryggi starfsmanna stofnunarinnar yrði ekki stofnað í hættu við að færast inn í ráðuneytið. „Við erum að auka framlög til þróunarsamvinnu og það er frekar líklegt að það þurfi með tíð og tíma að fjölga starfsmönnum.“ Ekki náðist í Sighvat Björgvinsson.
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Innlent Fleiri fréttir „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Sjá meira