Enski boltinn

Líkir fjölmiðlamönnum við fjöldamorðingja

NordicPhotos/GettyImages

Gordon Strachan, stjóri Glasgow Celtic í Skotlandi, lét skömmunum rigna yfir fjölmiðlamenn í dag og segir þá minna sig á fjöldamorðingja.

Strachan lét þessi orð falla á blaðamannafundi í dag þar sem hann skammaðist yfir því að orð hans og leikmanna hans hefðu verið slitin gróflega úr samhengi síðustu daga.

Haft var eftir Strachan í blaði um daginn að hann óskaði þess að hafa varnarmann á borð við David Weir í liði sínu. Varnarmenn Celtic voru víst ekki kátir með að lesa þessi ummæli.

"Þetta David Weir dæmi var alveg út í hött. Það var tekið við mig 20 mínútna viðtal og það getur vel verið að ég hafi notað orðin "vildi" og "Weir" einhversstaðar á tímanum - en þau komu aldrei nálægt hverju öðru," sagði Strachan og líkti fjölmiðlamönnum við fjöldamorðingja.

"Þið fjölmiðlamenn eruð stundum eins og raðmorðingjarnir sem maður sér í bíómyndunum," sagði Strachan fúll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×