Fordæmir há laun og hátt miðaverð 1. nóvember 2007 16:53 John Terry er með hátt í 19 milljónir króna í vikulaun hjá Chelsea NordicPhotos/GettyImages
Gerry Sutcliffe, nýráðinn íþróttamálaráðherra á Englandi, fordæmir laun fyrirliðans John Terry hjá Chelsea og segir miðaverð á leiki í ensku úrvalsdeildinni vera rokið upp fyrir allt velsæmi. Sutcliffe segir að himinhá laun knattspyrnumanna og hækkandi miðaverð séu að bola stuðningsmönnum frá íþróttinni. "Ég óska John (Terry) alls hins besta, en það er hneyksli að maður skuli fá 150,000 pund í vikulaun. Og ársmiðaverð hjá Manchester United hefur hækkað um 13% og handhafar þeirra þurfa sjálfkrafa að kaupa miða á Evrópuleiki og deildarbikarleiki á 200 pund. Það tekur mikið frá hinum almenna stuðningsmanni," sagði Sutcliffe á ráðstefnu í Lundúnum í dag. Hann er sjálfur stuðningsmaður Manchester United, en segir venjulegt fólk ekki hafa efni á að sjá liðið sitt lengur. "Venjulegt vinnandi fólk hefur ekki efni á að sjá Manchester United spila lengur og ég tel að sé mikil hætta á því að fólk þurfi að fara að hætta að mæta á leiki. Það yrði mjög hættuleg staða fyrir félögin ef það fengi stuðningsmennina upp á móti sér," sagði Sutcliffe. Hann segir að til greina komi að setja launaþak á leikmenn í deildinni. "Fólk úti á götu hreinlega skilur ekki þessi ofurlaun sem menn á borð við John Terry eru að fá. Chelsea er rekið með 250 milljón punda tapi og þó félagið ráði við það - er þetta ekki í tengslum við raunveruleikann. Það er ekki hægt að réttlæta 250 milljón punda hallarekstur." Forráðamenn Chelsea eru sagðir mjög óhressir með ummæli ráðherrans og fullyrða að hann hafi farið með rangt mál þegar hann talaði um rekstrartölur félagsins. Sutcliffe mun viðra skoðanir sínar á fundi með Richard Scudamore, yfirmanns úrvalsdeildarinnar og David Gill, framkvæmdastjóra Manchester United í dag.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira