Chelsea áfram eftir æsilegan leik 31. október 2007 21:55 Andriy Shevchenko fagnaði eins og óður maður í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Chelsea tryggði sér naumlega áframhaldandi þáttöku í enska deildarbikarnum í kvöld með 4-3 sigri á Leicester í æsilegum leik á Stamford Bridge. Arsenal, Blackburn, Tottenham og Liverpool eru líka komin áfram eftir sigra í kvöld. Chelsea lenti undir á heimavelli gegn Leicester en Frank Lampard kom liðinu í 2-1 fyrir hlé með tveimur mörkum. Þeir DJ Campbell og Carl Cort komu gestunum hinsvegar yfir í leiknum og Chelsea þurfti á tveimur dramatískum mörkum að halda í lokin til að tryggja sér sigurinn. Andriy Shevchenko jafnaði metin á 87. mínútu og Frank Lampard fullkomnaði þrennuna með skallamarki í blálokin eftir mistök markvarðarins Martin Fulop. Arsenal vann nokkuð öruggan 3-0 útisigur á Sheffield United þar sem þeir Eduardo (2) og Denilson skoruðu mörk Lundúnaliðsins. Tottenham lagði Blackpool 2-0 með mörkum frá Robbie Keane og Pascal Chimbonda tryggðu Juande Ramos sigur í fyrsta leik sínum í stjórastól hjá Tottenham. Liverpool lagði Cardiff 2-1 þar sem þeir Nabil El Zhar og Steven Gerrard skoruðu fyrir Liverpool. Robbie Fowler var í liði Cardiff gegn sínum gömlu félögum og skipti á treyjum við vin sinn Gerrard eftir leikinn. Manchester City vann fyrsta sigur sinn á Bolton síðan árið 2004 þegar Brasilíumaðurinn Elano fiskaði vítaspyrnu undir lok leiksins og skoraði úr henni sjálfur. City vann leikinn 1-0. Þá vann Blackburn góðan 2-1 útisigur á Portsmouth þar sem Benni McCarthy og Morten Gamst Pedersen skoruðu mörk gestanna en Kanu mark heimamanna. Leikur Luton og Everton var framlengdur eftir að staðan var jöfn 0-0 eftir 90 mínútur.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira