Enski boltinn

Englendingar sækja um HM 2018

NordicPhotos/GettyImages

Enska knattspyrnusambandið hefur nú tilkynnt formlega að það muni leggja fram beiðni um að halda HM í knattspyrnu árið 2018. Englendingar sóttu síðast um að halda keppnina sem fram fór í fyrra en þurftu að lúta í lægra haldi fyrir Þjóðverjum.

Englendingar fá líklega harða samkeppni og búist er við því að Ástralir, Kínverjar, Rússar, Bandaríkjamenn, Belgar, Hollendingar og Mexíkóar hafi allir áhuga á að fá keppnina.

Tilboð í keppnishaldið verða að vera formlega lögð fram árið 2009 og ákvörðun frá FIFA um hver hreppir hnossið verður tekin árið 2011.

Kostnaður við það eitt að gera tilboð í keppnishaldið er talinn nema á milli 12 og 15 milljónum punda - eða hátt í tveir milljarðar króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×