Enski boltinn

Neitar deilum við Gilberto

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gilberto Silva.
Gilberto Silva.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, blæs á þær sögusagnir að ósætti sé milli hans og miðjumannsins Gilberto Silva. Leikmaðurinn brasilíski hefur misst sæti sitt í byrjunarliði Arsenal þar sem Cesc Fabregas og Mathieu Flamini hafa náð vel saman á miðjunni.

„Það er ekkert til í því að eitthvað ósætti sé milli okkar. Mér finnst það í raun móðgandi fyrir jafn mikinn atvinnumann eins og Gilberto að þurfa að hlusta á þetta. Hann er mikilvægur hlutir af liðinu," sagði Wenger.

„Við erum með virkilega breiðan leikmannahóp. Það er líka það sem þarf ef lið ætla sér að ná árangri."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×