Enski boltinn

Torres byrjar hjá Liverpool

NordicPhotos/GettyImages

Spænski framherjinn Fernando Torres verður á ný í byrjunarliði Liverpool þegar það tekur á móti Arsenal í stórleik helgarinnar á eftir. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn 2 og hefst klukkan 16:00.

Xabi Alonso verður á miðjunni hjá Liverpool en þeir Ryan Babel og Jermaine Pennandt detta úr úr liðinu. Aðeins ein breyting verður gerð á liði Arsenal sem valtaði yfir Slavia Prag í vikunni - Tomas Rosicky tekur stöðu Theo Walcott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×