Enski boltinn

Liverpool á leið í skuldafen?

Gillett og Hicks keyptu Liverpool í vor
Gillett og Hicks keyptu Liverpool í vor NordicPhotos/GettyImages

Breska blaðið News of the World greinir frá því í dag að amerískir eigendur Liverpool gætu verið að sigla félaginu inn í skuldafen upp á hálfan milljarð punda.

Blaðið segir að eigendurnir George Gillett og Tom Hicks, sem lýstu því staðfastlega yfir við kaupin á Liverpool að þeir ætluðu ekki að skuldsetja það líkt og Glazer feðgar hjá Manchester United, séu að undirbúa tæplega 700 milljón punda endurfjármögnun á skuldum félagsins þar bygging nýja heimavallarins vegi þyngst.

Með þessu nýja láni yrð tæplega 300 milljóna skuld Liverpool við Royal Bank of Scotland hreinsuð upp, en hún var notuð til að kaupa félagið í mars. Þá færu hinar 400 milljónirnar í að mæta ört hækkandi kostnaði við byggingu nýja heimavallarins.

Liverpool mun vera í viðræðum við ameríska Wachovia bankann og segir Hicks að væntanlega náist samningar í næsta mánuði.

Liverpool vonast til að vinna sér inn um 100 milljónir punda fyrir nafnið á nýja vellinum, 20 milljónir í sérstakan styrk og 80 milljónir eftir öðrum fjármögnunarleiðum.

Þá standa enn eftir einar 500 milljónir punda í skuld og óttast stuðningsmenn Liverpool að Bandaríkjamennirnir séu að setja félagið í fjárhagslega spennitreyju með þessum ráðstöfunum.

Þetta myndi líklega þýða að Liverpool yrði að vera áskrifandi að þáttöku í Meistaradeildinni í hverju einasta ári til að fara ekki í þrot með að greiða af lánunum.

Þegar Gillett tók við stjórnartaumun hjá Liverpool á sínum tíma, lofaði hann að kaupin væru ekki í neinu samræmi við kaup Glazer feðga á Manchester United þar sem þeir eru sagðir hafa komið félaginu í 660 milljón punda skuld.

Þessi tíðindi virðast þó brjóta í bága við fyrri yfirlýsingar og stuðningsmenn félagsins hafa sumir hverjir miklar áhyggjur af áætlunum bandarísku eigendanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×