Ég er enginn Jose Mourinho 28. október 2007 12:09 NordicPhotos/GettyImages
Breska helgarblaðið News of the World hefur það eftir Juande Ramos í dag að hann vilji ólmur fá þá Freddie Kanoute og Daniel Alves til Tottenham frá Sevilla. Þá er hann einnig sagður vilja fá varnarmanninn Julien Scude og markvörðinn Andres Palop til Englands. "Ég væri til í að kaupa Alves og Kanoute því þeir myndu nýtast hvaða liði í heiminum vel - en ég er ekki viss um að Sevilla tæki vel í það," sagði Ramos í samtali við News of the World. Ramos sagði Sunday Mirror að Tottenham hefði ekki verið eina félagið sem reyndi að fá hann til Englands. "Mig hefur alltaf dreymt um að þjálfa á Englandi og Manchester City vildi fá mig í sumar, en þá gat ég ekki farið til Englands. Nú vildi Tottenham fá mig og ég samþykkti það," sagði Ramos. Bresku blöðin hafa gert mikið úr því að hinn mistæki markvörður Paul Robinson hjá Tottenham sé nú valtur í sessi eftir að skipt var um mann í brúnni á White Hart Lane. Ramos segir að enginn sé öruggur með sæti sitt í liði Tottenham, en vill ekki meina að hann sé næsti Jose Mourinho. "Robinson er landsliðsmarkvörður Englendinga, svo hann er nú varla lélegur leikmaður. Ég vil gefa honum og öllum öðrum í hópnum sjálfstraust svo þeir þurfi ekki að spila undir svona mikilli pressu, en eitt er þó á hreini - það á enginn leikmaður fast sæti í byrjunarliðinu," sagði Ramos. "Ég mun gera hlutina á minn hátt. Ég er Juande Ramos - ekki Jose Mourinho. Ég hef mínar ákveðnu vinnuaðferðir sem ég hef sýnt með góðum árangri hjá Sevilla og mig langar mikið að endurtaka leikinn hjá Spurs," sagði Ramos.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira