Enski boltinn

Hver er Juande Ramos?

Ramos bíður krefjandi verkefni á Englandi þar sem hann tekur við liði sem er í molum eftir skelfilega byrjun í haust
Ramos bíður krefjandi verkefni á Englandi þar sem hann tekur við liði sem er í molum eftir skelfilega byrjun í haust NordicPhotos/GettyImages

Juande Ramos náði fínum árangri með lið Sevilla síðustu tvö ár en fær nú það verkefni að beina Tottenham á rétta braut eftir skelfilega byrjun á leiktíðinni. Hér fyrir neðan stiklað á stóru yfir feril Ramos.

Juande Ramos heitir réttu nafni Juan de la Cruz Ramos Cano og er 53 ára gamall. Hann var ekki sérlega þekktur þjálfari þegar hann tók við liði Sevilla sem hann gerði að tvöföldum Evrópumeisturum félagsliða.

Ramos byrjaði þjálfaraferilinn hjá Elche á Spáni eftir að hafa verið á mála hjá nokkrum liðum í neðrideildunum þar í landi. Fyrsta stóra starfið hans var þegar hann var ráðinn þjálfari Logrones fyrir 12 árum, en hefur líka stýrt B-liði Barcelona og Lleida.

Það var samt ekki fyrr en hann tók við Rayo Vallecano sem menn fóru að taka eftir störfum hans, en hann kom þessu litla liði í úthverfi Madrid upp í efstu deild og náði alla leið í fjórðungsúrslit Evrópukeppni félagsliða.

Árið 2001 tók Ramos við Betis sem þá var nýfallið úr efstu deild, en hann kom liðinu beint upp aftur. Á sama tíma hrundi lið Rayo og er nú komið niður í þriðju deild á Spáni. Ramos var aðens eitt ár hjá Betis og skipti þaðan yfir í Espanyol.

Þar átti hann erfitt uppdráttar og skipti yfir til Mallorca, þar sem hann náði 10. sæti í deildinni leiktíðina 2004-05. Það var fyrst og fremst fyrir störf hans hjá Mallorca sem stjórnarformaður Sevilla, Jose Maria del Nido, ákvað að ráða Ramos til félagsins.

Sevilla óx jafnt og þétt undir stjórn Ramos, en undir stjórn forvera hans hafði liðið náð sjötta sætinu í deildinni tvö ár í röð. Þetta var í fyrsta skipti sem Ramos tók við liði sem gat talist á uppleið á ferlinum og hann nýtti tækifærið vel.

Hjá Sevilla hafði hann loksins efnivið til að byggja upp gott lið og með blöndu hans af heimamönnum, Suður-Ameríkumönnum og útlendum tæklurum, náði þjálfarinn að setja saman lið sem var blanda af spænskum töktum, ítölsku skipulagi og enskum hraða.

Þessi blanda small mjög vel saman hjá Sevilla og Ramos var fljótur að vinna bæði gagnrýnendur, fjölmiðlamenn og stuðningsmenn félegsins á sitt band. Sevilla vann Evrópukeppni félagsliða tvö ár í röð undir stjórn Ramos og voru það fyrstu alvöru titlar félagsins í hátt í sex áratugi. Liðið varð fyrsta liðið í 21 ár til að verja titil sinn í Evrópukeppni félagsliða og í deildinni veitti það Barcelona og Real Madrid mjög góða samkeppni um titilinn allt fram í síðustu umferðirnar.

Ramos talar litla ensku, en hefur verið í sérstakri enskukennslu á síðustu misserum. Hann hefur heldur aldrei farið leynt með þá staðreynd að hann óski sér að stýra liði á Englandi og fær nú heldur betur krefjandi verkefni.

Stjórn Tottenham hefur ákveðið að taka rækilega til í sínum herbúðum og þar á bæ eru kröfurnar skýrar - liðinu er ætlað að blanda sér í hóp fjögurra bestu á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×