Ramos hættur hjá Sevilla 26. október 2007 21:27 Juande Ramos NordicPhotos/GettyImages
Juande Ramos hefur sagt starfi sínu lausu hjá Sevilla og því virðist fátt því til fyrirstöðu að hann geti tekið við Tottenham á Englandi eins fram hefur komið í fjölmiðlum í dag. Martin Jol var látinn taka pokann sinn hjá Tottenham í gærkvöld eftir skelfilega byrjun liðsins í haust og Ramos var strax orðaður við stöðuna. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum en sagði upp í kvöld. Hann hefur þegar kvatt stuðningsmenn Sevilla á heimasíðu sinni. Þá hefur Marcos Alvarez, einn af þjálfurum Sevilla, einnig sagt af sér hjá félaginu. Fregnir herma að Tottenham hafi boðið Ramos mjög feitan samning og þá er talið að félagið sé að reyna að fá fyrrum leikmann sinn, Gus Poyet, til að gerast aðstoðarmann Ramos. Poyet er aðstoðarmaður Dennis Wise, stjóra Leeds. Hann lýsti því yfir í viðtali í kvöld að hann gæti vel hugsað sér að ræða við Tottenham ef félagið sýndi sér áhuga - en forráðamenn Leeds eru reyndar ekki jafn hrifnir af þeirri hugmynd og hafa beðið hann að halda sig frá liðinu fram yfir helgina til að skapa ekki óróa í herbúðum liðsins. Poyet lék með Tottenham í þrjú ár og ef hann yrði fengin til félagsins yrði það ekki síður til að greiða fyrir Ramos á enskri tungu, því sá spænski talar ekki góða ensku.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira