Enn ein þrennan á Anfield? 26. október 2007 14:58 Robbie Fowler reyndist Arsenal oft erfiður á síðasta áratug NordicPhotos/GettyImages
Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er án efa viðureign Liverpool og Arsenal á Anfield. Ef marka má söguna gæti farið svo að hér yrði um markaleik að ræða, en viðureignir Liverpool og Arsenal hafa leitt af sér flestar skoraðar þrennur í sögu úrvalsdeildarinnar. Leikja Liverpool og Arsenal er jafnan beðið með sérstakri eftirvæntingu og hafa viðureignir liðanna ekki valdið vonbrigðum á síðasta áratug eða svo. Einvígi þessara liða eru sérstök fyrir þær sakir að leikmenn hafa náð að skora flestar þrennur í þessu tiltekna einvígi en nokkru öðru frá stofnun úrvalsdeildarinnar, eða fjórar talsins. Það var ungur Robbie Fowler sem reið á vaðið leiktíðina 1994-95 þegar hann sallaði þremur mörkum á David Seaman á Anfield á aðeins fimm mínútum. Fowler var kosinn besti ungi leikmaðurinn í úrvalsdeildinni þetta árið og ótrúleg þrenna hans er sú skjótasta í sögu úrvalsdeildarinnar. Arsenal-hrellirinn Fowler var svo aftur á ferðinni árið eftir þegar hann skoraði aftur þrennu gegn Arsenal á heimavelli í 3-1 sigri Liverpool. Á síðustu leiktíð var það svo hinn leggjalangi Peter Crouch sem saltaði sár Arsenal-manna með þrennu á Anfield. Þetta var fyrsta þrenna hans í ensku úrvalsdeildinni. Mikilvægasta þrennan sem skoruð hefur verið í þessu klassíska einvígi kom þó frá Frakkanum Thierry Henry vorið 2004. Henry var sjóðandi heitur þetta árið og tryggði Arsenal 4-2 sigur á Liverpool með þrennu sinni. Þar spilaði Arsenal 33. leik sinni í röð án taps í úrvalsdeildinni og þremur leikjum síðar tryggði liðið sér titilinn með því að skella erkifjendum sínum í Tottenham á útivelli. Það má því eiga von á skemmtilegum leik á sunnudaginn þegar þessi stórlið mætast á ný, en Arsenal mætir á Anfield fast á hæla ótrúlegs 7-0 sigurs í Meistaradeildinni í vikunni. Hér fyrir neðan er listi yfir einvígi sem hafa leitt af sér flestar þrennur leikmanna frá stofnun úrvalsdeildarinnar. 4- Arsenal - Liverpool 3- Arsenal - Ipswich 3- Arsenal - Leicester 3- Arsenal - Southampton 3- Coventry - Leeds 3- Everton - Q.P.R. 3- Liverpool - Newcastle 3- Liverpool - Southampton 3- Man. United - Newcastle 3- Man. United - Southampton
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira