Enski boltinn

Allen og Inglethorpe taka við Tottenham

Martin Jol segist aldrei gleyma stuðningsmönnum Tottenham
Martin Jol segist aldrei gleyma stuðningsmönnum Tottenham NordicPhotos/GettyImages

Stjórn Tottenham staðfesti í morgun fréttir gærkvöldsins þar sem fram kom að félagið hefði sagt þeim Martin Jol og Chris Houghton upp störfum. Flestir miðlar eru á því að það verði Juande Ramos hjá Sevilla sem taki við enska liðinu, en þó ekki fyrr en næsta sumar.

"Við getum staðfest að stjórn Tottenham leysti knattspyrnustjórann og þjálfarann frá störfum í gærkvöld en þrátt fyrir þessa ákvörðun var hún ekki auðveld og þeir hafa báðir unnið gott starf í tíð sinni hér," sagði m.a. í yfirlýsingu frá félaginu.

Martin Jol sendi líka frá sér yfirlýsingu í gær og sagðist ekki erfa það við stjórn félagsins að hún hefði sagt honum upp störfum. "Ég skil afstöðu félagsins í ljósi úrslita undanfarið. Ég hef notið þess að vera hérna, Tottenham er sérstakt félag og ég vil þakka öllu því frábæra fólki sem ég hef unnið með. Stuðningsmennirnir voru stórkostlegir og ég mun aldrei gleyma þeim," sagði Jol.

Þá tilkynnti félagið að unglingaliðsþjálfararnir Clive Allen og Alex Inglethorpe myndu taka við stjórn liðsins þangað til það finnur eftirmann Jol.

Markvarðaþjálfarinn Hans Segers var líka rekinn frá Tottenham í tiltektinni í gærkvöld, en þessi fyrrum markvörður Wimbledon og Notthingham Forest hafði verið hjá félaginu síðan árið 1998. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×