Enski boltinn

Komdu til Inter

NordicPhotos/GettyImages

Argentínski framherjinn Hernan Crespo hefur skorað á fyrrum félaga sinn Didier Drogba hjá Chelsea að ganga í raðir Inter Milan á Ítalíu.

Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að Drogba sé á förum frá Chelsea og Crespo vill endilega fá hann til Ítalíu. "Drogba er frábær leikmaður og ég skil að hann vilji fara frá Chelsea eftir að Mourinho hætti. Ef hann þolir að vera ekki alltaf í byrjunarliðinu, held ég að hann gæti fallið vel inn hérna hjá okkur," sagði Crespo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×