Enski boltinn

Wenger gerir lítið úr mér

NordicPhotos/GettyImages

Þolinmæði markvarðarins Jens Lehmann hjá Arsenal virðist vera á þrotum ef marka má sjónvarpsviðtal sem kappinn gaf á stöð í heimalandi sínu. Lehmann segist vera orðinn leiður á niðurlægingunni sem fylgi því að fá ekki að spila.

"Það getur vel verið að ég tjái mig um þetta mál í framtíðinni en í augnablikinu ætla ég bara að kyngja stoltinu og sætta mig við að vera niðurlægður. Ég held samt að stjórinn ætti að passa sig að koma ekki svona fram við leikmenn sína of lengi í einu. Ég er leikmaður Arsenal og gef mig ekki svo glatt," sagði Lehmann.

Hann var ekki í leikmannahópi Arsenal gegn Bolton á dögunum þrátt fyrir að hafa náð sér af meiðslum. Arsene Wenger var þá spurður hvernig stæði á því og hann svaraði því til að hann ætti þrjá heimsklassa markverði.

"Wenger sagðist eiga þrjá markverði í heimsklassa og því spyr ég mig hvað hann meinar með því. Ég hlýt að vera einn af þessum markvörðum, en ég get ekki séð hvaða titla hinir tveir hafa unnið til að geta talist markverðir í þessum klassa," sagði Lehmann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×