Clattenburg vill vingast við Liverpool 22. október 2007 10:55 Moyes er bálillur yfir mistökum dómarans um helgina NordicPhotos/GettyImages
David Moyes, stjóri Everton, er enn bálreiður út í dómarann Mark Clattenburg eftir tapið fyrir Liverpool um helgina. Moyes segir Clattenburg hafa gert sig sekan um fáránleg mistök og segist ekki muni taka við afsökunarbeiðni frá honum þó hún stæði til boða. Moes er enn reiður yfir því að Clattenburg skuli hafa gefið Liverpool tvær vítaspyrnur í grannaslagnum, en dæmdi ekki víti þegar Joleon Lescott var togaður niður í teignum hjá þeim rauðu undir lok leiksins. Clattenburg fyllti mælinn hjá Moyes með því að sleppa því að reka Dirk Kuyt af velli fyrir villta tæklingu hans á Phil Neville - en hikaði ekki þegar hann rak Tony Hibbert af velli fyrir brot á Steven Gerrard. Liverpool varð fyrir dómaraklúðri í upphafi leiktíðar þegar Rob Styles gaf Chelsea glórulaust víti á Anfield, en hann hringdi þá sérstaklega í Rafa Benitez og bað hann afsökunar þegar hann sá að sér. David Moyes á ekki von á að svipað verði uppi á teningnum hjá sér og setur spurningamerki við heilindi dómarans. "Rob Styles hringdi í Benitez og bað hann afsökunar, en ég hef ekki fengið slíkt símtal. Það skiptir heldur ekki máli, því ef Clattenburg myndi hringja í mig - myndi ég ekki svara honum," sagði Moyes. "Maður spyr sig hvort þessir dómarar láta toppliðin fjögur virkilega hafa svona mikil áhrif á sig. Fór ekki Clattenburg til Hong Kong með Liverpool-liðinu í sumar - hann hlýtur að vilja vera vinur þeirra," sagði Moyes hundfúll og hélt áfram. "Ég reyni eins og ég get að forðast að ræða dómara, en þessar ákvarðanir hans voru okkur mjög dýrar. Maður hefði horft framhjá því ef hann hefði klikkað á einu eða tveimur atriðum, en þetta voru stór klúður hjá honum. Hvernig í ósköpunum getur maður kallast hæfur dómari sem tekur ekki eftir því þegar Carragher togaði Lescott niður í teignum?"
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira