Enski boltinn

20 bestu kaupin í sögu enska boltans

Eric Cantona er lifandi goðsögn í ensku knattspyrnunni
Eric Cantona er lifandi goðsögn í ensku knattspyrnunni NordicPhotos/GettyImages

Á meðan margir af bestu leikmönnum í sögu ensku knattspyrnunnar hafa verið keyptir á vænan skilding, hafa nokkrir þeirra slegið í gegn eftir að hafa verið fengnir í skiptum fyrir fatnað og æfingaútbúnað. Hér á eftir fara 20 af bestu kaupum sem gerð hafa verið í sögu enska boltans.

20. Darren Bent (Frá Ipswich til Charlton fyrir 2,5 milljónir punda, 2005).

Það fór ekki mikið fyrir því sumarið 2005 þegar Darren Bent var seldur til Charlton, sem nappaði honum fyrir aðeins 2,5 milljónir punda. Tveimur árum og 31 marki síðar var landsliðsmaðurinn seldur til Tottenham fyrir svalar 16,5 milljónir punda. Þar af fær Ipswich aðrar 2,5 milljónir punda vegna ákvæðis í kaupunum forðum.

19. Roy Keane (Frá Nottingham Forest til Mancester United fyrir 3,75 milljónir punda 1993)

Keane var nærri farinn til Blackburn áður en hann ákvað að fara til United og þeim sem efast um getu hans er bent á að horfa á frammistöðu hans gegn Juventus í Meistaradeildinni árið 1999.

"Þetta var öflugasta frammistaða manns sem ég hef séð á knattspyrnuvelli. Hann heflaði hvert einasta strá á vellinum og hamaðist eins og hann vildi frekar deyja en tapa leiknum. Hann dreif alla í liðinu með sér í þessum leik og það var heiður að fá að starfa með svona leikmanni," sagði Sir Alex Ferguson um fyrirliða sinn.

18. David Nugent (Frá Bury til Preston fyrir 100,000 pund árið 2005)

Nugent náði ekki að festa sig í sessi hjá Liverpool og þurfti að fara aftur í harkið í neðrideildunum áður en hann sannaði sig og var keyptur til Preston fyrir 10,000 pund. Tveimur árum og marki í sínum fyrsta landsleik síðar - var framherjinn keyptur til Portsmouth fyrir um 7 milljónir punda.

17. Ian Rush (Frá Chester til Liverpool fyrir 300,000 pund árið 1980)

Stuðningsmenn Manchester United fá enn í magann þegar þeir heyra nafn hans. Rush skoraði að vild með Liverpool og aldrei var hann í meira stuði en einmitt á móti United. Hann skoraði 346 mörk í 658 leikjum og verðlaunasafnið inniheldur m.a. fimm meistaratitla, þrjá bikarmeistaratitla og Evrópubikar. Ekki slæmt fyrir mann sem hélt með Everton á sínum yngri árum.

16. Peter Withe (Frá Newcastle til Aston Villa fyrir 500,000 pund árið 1980)

Aston Villa greiddi á sínum tíma metfé fyrir Withe en hann var fljótur að borga það til baka með því að skora 20 mörk fyrir liðið sem varð enskur meistari vorið eftir. Hann skoraði svo sigurmark Villa í úrslitaleik Evrópukeppninnar gegn Bayern Munchen árið 1982.



Gianfranco Zola sýndi ótrúleg tilþrif með ChelseaNordicPhotos/GettyImages

15. Nicolas Anelka (Frá Paris St Germain til Arsenal fyrir 500,000 pund árið 1996)

Enginn nema Arsene Wenger gæti skapað félagi sínu aðra eins fjárfestingu. Enginn efaðist um hæfileika framherjans þegar hann byrjaði að spila með Arsenal en hann var fljótur að koma sér í ónáð þar eins og allsstaðar þar sem hann hefur komið síðan. Hann var 17 ára gamall þegar hann kom til Arsenal, en tveimur og hálfu ári síðar var hann farinn að gefa forráðamönnum Real Madrid höfuðverk og Wenger sat eftir glottandi - 22,5 milljónum punda ríkari.

14. Gianfranco Zola (Frá Parma til Chelsea fyrir 4,5 milljónir punda árið 1996)

Ítalinn smávaxni var farinn að vinna titla á Stamford Bridge áður en Roman Abramovich kom þangað með milljarðana sína. Zola fylgdist með Maradona sýna listir sínar þegar hann var ungur leikmaður hjá Napoli en átti svo síðar eftir að sýna svipuð tilþrif í ensku úrvalsdeildinni. "Hann er seigur sá litli," sagði Alex Ferguson um hann. Líklega vinsælasti leikmaður í sögu Chelsea.

13. Kevin Keegan (Frá Scunthorpe til Liverpool fyrir 35,000 pund árið 1971)

Keegan var ekki bara með flott permanent. Keegan er eini Englendingurinn sem hefur verið valinn knattspyrnumaður Evrópu í tvígang. Hann kvaddi Liverpool eftir 323 leiki og 100 mörk og endaði á því að lyfta Evrópubikarnum með liðinu árið 1977. "Ég tárast alltaf þegar þeir byrja að syngja ´you never walk alone´og það hefur komið fyrir að ég hef verið grátandi á meðan ég spilaði," sagði Keegan þegar hann fór frá liðinu.

12. Peter Schmeichel (Frá Bröndby til Man Utd fyrir 550,000 pund árið 1991)

Sir Alex Ferguson hefur keypt nokkra ansi vafasama markverði í 20 ára tíð sinni hjá United, en hann vann í lottóinu þegar hann keypti þennan stæðilega Dana á sínum tíma. Schmeichel var lykilmaður í ósigrandi liði United á tíunda áratugnum og Ferguson kallaði hann kostakaup aldarinnar á sínum tíma.

11. Cristiano Ronaldo (Frá Sporting Lissabon til Man Utd fyrir 12 milljónir punda 2003)

Hvort sem þú elskar hann eða hatar hann, hefur þessi stífgelaði vængmaður sannað sig á Englandi og peningurinn sem Ferguson gaf fyrir hann er smáaurar í dag. United hafði verið að fylgjast með honum lengi en Ferguson var ekki viss - þangað til hann tætti vörn United í sig á æfingamóti í Portúgal. Ef Ronaldo væri ekki svona hrifinn af sjálfum sér hefði hann jafnvel ratað enn ofar á þennan lista.

Besti varnarmaðurinn spilaði fullur
Paul McGrath var harður í horn að taka - timbraður eða ekkiNordicPhotos/GettyImages

10. Petr Cech (Frá Rennes til Chelsea fyrir 7 milljónir punda árið 2004)

Jose Mourinho heldur því enn fram að Chelsea hefði unnið ensku deildina þrjú ár í röð ef hann hefði ekki þurft að vera án markvarðar síns í þrjá mánuði vegna meiðsla á síðustu leiktíð. Og hvenær hefur Sá Útvaldi rangt fyrir sér? Cech er almennt talinn besti markvörður heimsins í dag ásamt Gianluigi Buffon hjá Juventus.

9. Dennis Bergkamp (Frá Inter til Arsenal fyrir 7,5 milljónir punda árið 1995)

Bruce Rioch er minnst fyrir tvennt hjá Arsenal. Fyrir að vera arfaslakur knattspyrnustjóri - og fyrir að kaupa Dennis Bergkamp. Hollendingurinn - ekki svo mikið fljúgandi - er almennt álitinn næstbesti leikmaður Arsenal fyrr og síðar, á eftir Thierry Henry. Sendingar hans og útsjónasemi voru engu lík.

8. Paul McGrath (Frá Man Utd til Aston Villa árið 1989)

McGrath hataði ekki sopann - en Alex Ferguson vildi enga drykkjuhrúta í sitt lið og lét hann fara fyrir klink. Þegar McGrath skipti yfir í Villa festi hann sig í sessi sem einn allra besti miðvörður sinnar kynslóðar. Hann viðurkenndi síðar í ævisögu sinni að hann hefði átt það til að spila fullur. Það er því ótrúlegt að hugsa til þess hvað þessi ótrúlegi varnarjaxl hefði afrekað ef hann hefði sloppið við meiðsli - og kannski hangið edrú.

7. John Barnes (Frá Sudbury Court til Watford fyrir nokkrar keppnistreyjur árið 1981)

Graham Taylor gerði ekki sérstaklega gott mót sem landsliðsþjálfari en breytti öllu sem hann snerti á Vicarage Road í gull. Hann gaf Barnes tækifæri með varaliði Watford eftir að hafa séð hann spila með utandeildarliðinu Sudbury og Barnes launaði honum sénsinn með því að skora 92 mörk fyrir félagið áður en hann var síðar seldur til Liverpool fyrir 900,000 pund árið 1986.



6. Gary Pallister (Frá Billingham Town til Middlesbrough fyrir búningasett, bolta og marknet árið 1984)

Pallister, eða "Dísa" eins og hann var kallaður af félögum sínum í Manchester United, vann fjóra deildartitla og þrjá bikara með United á sínum tíma. Árið 1984, þegar hann var 19 ára, var hann seldur fyrir eitt búningasett, nokkra bolta og marknet eftir að njósnarar Boro sáu hann spila með Billingham. Hann var svo seldur fyrir 2,3 milljónir punda til United árið 1989.

Kenny Dalglish er goðsögn á AnfieldNordicPhotos/GettyImages

5. Ian Wright (Frá Greenwich Borough til Crystal Palace fyrir lóðasett árið 1985)

Þessi markahrókur var á góðri leið með að gerast gifsari að atvinnu og lék aðeins sem áhugamaður með Greenwich árið 1985 þegar Steve Coppell bauð honum að koma til reynslu til Palace. Coppell leist svo vel á drenginn að hann bauð honum samning og gaf Greenwich lóðasett í staðinn. Wright skoraði 117 mörk í 277 leikjum fyrir Palace og var að lokum seldur til arsenal fyrir 2,5 milljónir punda árið 1991.

4. Thierry Henry (Frá Juventus til Arsenal fyrir 10,5 milljónir punda árið 1999)

Stuðningsmenn Juventus voru himinlifandi að losna við þennan fýlda Frakka leiktíðina 1998-99 eftir að hann skoraði aðeins þrjú mörk fyrir félagið. Þá hefur eflaust ekki grunað að þeir væru þar að sjá á eftir einum besta leikmanni heimsins - ferill hans hjá Arsenal talar sínu máli um það. Henry sprakk út þegar hann fékk að leika undir stjórn Arsene Wenger á ný og varð markahæsti leikmaður í sögu Arsenal.



3. Kenny Dalglish (Frá Celtic til Liverpool fyrir 440,000 pund árið 1977)

Fernando Torres getur rétt reynt að feta í fótspor þessa manns. Það var Bob Paisley sem keypti Dalglish til að fylla skarð Kevin Keegan - og hann olli ekki vonbrigðum og skoraði 31 mark á sínu fyrsta tímabili fyrir þá rauðu - þar af sigurmarkið í úrslitaleik Evrópukeppninnar árið 1978.



2. Dixie Dean (Frá Tranmere til Everton fyrir 3,000 pund árið 1925)

Dixie Dean er kannski ekki algengasta nafnið á kaffistofunni í dag, en hann er einfaldlega magnaðasti markaskorari í sögu ensku knattspyrnunnar. Kaupverðið jafngildir um það bil þeirri upphæð sem Andriy Shevchenko hefur á tímann hjá Chelsea - en þessi kauði kunni að skora mörk. Hann er eini maðurinn í sögunni sem hefur skorað sextíu mörk á tímabili og skoraði alls 383 mörk í 433 leikjum fyrir þá bláklæddu.



1. Eric Cantona (Frá Leeds United til Man Utd fyrir 1,2 milljónir punda árið 1992)

Cantona mætti á Old Trafford, smellti upp kraganum á treyjunni og sló í gegn. Howard Wilkinson hringdi í Alex Ferguson einn daginn og ætlaði að spyrja hann hvort Dennis Irvin væri til sölu. Ferguson svaraði því hinsvegar með gagntilboði og nældi í Frakkann skapheita.

Það sem á eftir kom er ritað í sögubækur þar sem Cantona fór fyrir frábæru liði United með glæsimörkum og karatespörkum og er vel að því kominn að toppa þennan lista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×