Enski boltinn

Allardyce horfir á götótta vörn Tottenham

NordicPhotos/GettyImages

Sam Allardyce, stjóri Newcastle, ætlar sínum mönnum að nýta sér veikleika í liði Tottenham þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Martin Jol hjá Tottenham var góður með sig í viðtölum í morgun þar sem hann sagði Newcastle ekki á pari við sína menn undanfarin tvö ár. Það kann að hljóma hrokafullt frá stjóra sem eyddi tugum milljóna punda fyrir leiktíðina en er í bullandi fallbaráttu.

"Tottenham er búið að eyða miklu og er með frábæra leikmenn sem geta gert okkur lífið leitt. Það er hinsvegar ekki mikið sjálfstraust í liðinu núna og við verðum að nýta okkur það og horfum þar sérstaklega til varnarleiks þeirra," sagði Stóri-Sam.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×