Enski boltinn

Wenger og Fabregas bestir í september

Fabregas og Wenger höfðu góðar ástæður til að brosa í september eftir frábæra byrjun á leiktíðinni
Fabregas og Wenger höfðu góðar ástæður til að brosa í september eftir frábæra byrjun á leiktíðinni NordicPhotos/GettyImages

Það kemur líklega fæstum á óvart að þeir Arsene Wenger og Cesc Fabregas voru í dag kjörnir knattspyrnustjóri og leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2004 sem það kemur í hlut Arsenal-manna að hirða bæði verðlaun. Þetta er í annað sinn sem Fabregas er valinn leikmaður mánaðarins en í níunda sinn sem Wenger er valinn stjóri mánaðarins.

Fabregas skoraði í þremur leikjum í röð fyrir Arsenal í september og voru það allt sigurleikir - 3-1 gegn Portsmouth, 3-1 gegn Tottenham og 5-0 sigur á Derby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×