Enski boltinn

Cole og Terry meiddir

Terry og Cole leika ekki með Chelsea næstu vikurnar
Terry og Cole leika ekki með Chelsea næstu vikurnar NordicPhotos/GettyImages

Chelsea verður án tveggja af lykilmönnum sínum næstu þrjár til fjórar vikurnar, en í dag tilkynnti félagið að Terry yrði frá í að minnsta kosti þrjár vikur vegna hnéuppskurðar og Cole í allt að fjórar vikur vegna ökklameiðsla.

Báðir meiddust þeir í herbúðum enska landsliðsins á dögunum og nú er ljóst að Chelsea þarf að fylla skarð þeirra næstu vikurnar. "Við erum með stóran hóp og verðum að bregðast við þessu eins vel og við getum," sagði Avram Grant, knattspyrnustjóri Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×