Erlent

Níu ára drengur misnotaður á leikvelli

Lögregla leitar vísbendinga á leikvellinum
Lögregla leitar vísbendinga á leikvellinum

Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar nú að karlmanni af sómölskum ættum eftir að hann veittist að níu ára dreng seinnipartinn í dag og misnotaði hann kynferðislega.

Lögreglan segir að maðurinn hafi komið á hjóli að leikvelli í Amagerhverfinu í Kaupmannahöfn þar sem nokkur börn voru við leik.

Hann hafi veist að einu þeirra, níu ára gömlum dreng, hrint honum í jörðina og tekið niður um sig buxurnar. Lögreglan segir að því næst hafi maðurinn byrjað að fróa sér.

Ekki er vitað nákvæmlega hversu lengi þetta stóð yfir. Börnin á leikvellinum forðuðu sér skelfingu lostin og sóttu hjálp.

Maðurinn á leikvellinum var horfinn þegar lögregla kom á svæðið og er hans nú ákaft leitað. Að sögn lögregu er um að ræða mann sem börnin í hverfinu þekkja af svipaðri hegðun. Málið hefur vakið ugg á meðal foreldra á Amager og leggur lögreglan því allt kapp á að hafa hendur í hári mannsins sem fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×