Erlent

Lögreglumönnum í máli Madelaine fækkar úr tvöhundruð í þrjá

Lögreglumönnum sem sjá um rannsóknina á hvarfi Madelaine McCann mun á næstu dögum fækka niður í þrjá. Dagblaðið The Daily Telegraph greinir frá þessu. Þegar mest var voru um tvöhundruð lögreglumenn að rannsaka hvarf stúlkunnar litlu.

Undanfarnar vikur hafa sex rannsóknarlögreglumenn unnið að rannsókn málsins. Tveir þeira hafa nýverið verið reknir eftir að hafa með óábyrgum hætti tjáð sig um málið í fjölmiðlum.

Þangað til ráðið verður í þeirra stöður eru aðeins fjórir menn í málinu. Þeim mun fækka enn frekar á næstu vikum þar sem þeir þurfa, einn af öðrum, að taka sér lögbundið frí vegna mikillar yfirvinnu undanfarið.

Portúgölsku lögreglunni gegnur erfiðlega að finna menn til þess að leysa af í málinu þar sem starfinu fylgir gríðarlegt álag vegna hinnar miklu fjölmiðlaumfjöllunnar um málið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×