Erlent

Harry bretaprins í líki látins hermanns

Skúlptúr eftir bandarískan listamann af Harry Bretaprins verður afhjúpaður í næstu viku. Líklegt má telja að hann eigi eftir að valda nokkrum usla því um er að ræða bronsstyttu af prinsinum þar sem hann er gerður að hermanni sem fallið hefur í stríðinu í Írak.

Prinsinn hefur gengt hermennsku en hefur þó ekki verið sendur til Írak. Listamaðurinn segir sljóleysi almennings gagnvart stríðinu ástæðu þess að hann velji að fara þessa óhefðbundnu leið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×