Spáð í spilin: Bolton v Newcastle 11. ágúst 2007 12:00
Á Reebok Stadium mætast liðin hans Sam Allardyce. Þó hann sé hættur að þjálfa Bolton og tekin við Newcastle velkist ekki nokkur maður í vafa um hversu mikilla áhrifa Allardyce enn gætir hjá hans gamla liði. Margir spá því að hlutskipti þessara liða muni víxlast frá því á síðasta ári. Bolton var í efri hlutanum að berjast fyrir evrópusæti en Newcastle barðist í neðri hlutanu. Nú telja menn að það verði öfugt. Bolton liðið hans Sammy Lee er spurningamerki ekki síst vegna þess hve erfitt er að átta sig á hvort hann hafi náð að stimpla sig inn hjá liðinu. Lee var aðstoðarmaður Allardyce um nokkurt skeið og mönnum í slíkri stöðu hefur oft reynst erfitt að feta í fótspor yfirmanna sinna. Newcastle er að sama skapi óskrifað blað. Liðið hefur leikið undir væntingum í fjölmörg ár en mikil trú er á því að Sam Allardyce geti snúið því við. Leikur Bolton og Newcastle hefst klukkan 13:45 og er sýndur á Sýn Extra1 Liðin á leikmannamarkaðinum Bolton Inn:Heiðar Helguson. Íslendingurinn baráttuglaði var næstum því búinn að skrifa undir hjá sínum gömlu félögum í Watford en Bolton krækti í kappann á síðustu stundu.Zoltan Haranyi. Slóvaskur U21 landsliðsmaður skrifaði undir 3 ára samning eftir að hafa verið lánsmaður hjá félaginu.Jlloyd Samuel. Fenginn til frá Aston Villa á frjálsri sölu.Blerim Dzemaili. 20 ára gamall fyrirliði FC Zurich og Svissneskur landsliðsmaður kemur á frjálsri sölu.Gerald Cid. 23 ára franskur varnarmaður kemur frá Bordeaux á frjálsri sölu.Gavin McCann. Skoskur miðjumaður skrifar undir 3 ára samning eftir að hafa eytt fjórum árum á Villa Park.Danny Guthrie. 20 ára miðjumaður kemur á eins árs lánssamningi frá Liverpool.Mikel Alonso. 27 ára miðjumaður frá Real Sociedad kemur á eins árs lánssamningi. Mikel er bróðir Xabi Alonso hjá Liverpool. Seldir:Tal Ben Haim. 25 ára miðvörður frá Ísrael. Fór til Chelsea á frjálsri sölu.Quinton Fortune. 30 ára gamall, látinn fara á frjálsri sölu.Cesar Martin. 30 ára Spánverji látinn fara á frjálsri sölu eftir aðeins einn leik fyrir félagið.Henrik Pedersen. 32 ára Dani látinn fara á frjálsri sölu eftir 150 leiki og sex ár hjá félaginu.David Thompson. Liverpool maðurinn fyrrverandi er látinn fara á frjálsri sölu. Newcastle United Inn: Mark Viduka kom frá Middlesbrough á frjálsri söluJoey Barton kom frá Newcastle á 5.8 milljónir punda.David Rozehnal kom frá Paris St Germain á 2.9 milljónir punda. Rozhnal er 26 ára gamall tékkneskur varnarmaður.Geremi kom á frjálsri sölu frá Chelsea.Alan Smith kom frá Manchester United á 6 milljónir punda.Fyrirliði Lyon, Claudio Cacapa, kom á frjálsri sölu.Jose Diaz kom frá Villareal á 6.3 milljónir. Diaz er vinstri bakvörður og var kallaður “Nautið” á Spáni Út:Titus Bramble fór til Wigan á frjálsri sölu. Hann er 25 ára.Antoine Sibierski fór til Wigan á frjálsri sölu. Hann er 32 ára.Scott Parker fór til West Ham fyrir 7 milljónir punda.
Mest lesið ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Íslenski boltinn Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Körfubolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Fótbolti Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Handbolti „Ef við vinnum Brann á heimavelli þeirra verð ég glaður maður“ Fótbolti Fleiri fréttir Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Sjá meira