Erlent

Talibanar myrða annan Suður-Kóreskan gísl

Lík annars Suður Kóresks gíslsins af þeim tuttugu og þremur sem Talibanar tóku til fanga 19 júní síðastliðinn fannst í Gasní sýslu í Afganistan í nótt. Þeir hafa marg framlengt frest sem þeir gáfu Afgönskum stjórnvöldum til að láta lausa talibana sem þau hafa í haldi, en sá síðasti þeirra rann út á hádegi í gær. Stjórnvöld segjast ekki munu verða við við kröfum þeirra. Talsmaður talibananna, Sabíúlla Mújahíd, sagði þá ætla að myrða fleiri gísla verði föngunum ekki sleppt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×