Flutningur í vændum hjá Everton? 17. júlí 2007 14:11 Goodison Park, heimavöllur Everton NordicPhotos/GettyImages
Framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Everton segir að félaginu standi til boða tilboð aldarinnar til að byggja nýjan leikvöll sem staðsettur yrði í Kirkby, nokkuð fyrir utan Liverpoolborg. Leikvangurinn yrði að stórum hluta fjármagnaður af Tesco verslunarkeðjunni og tæki 50-55,000 manns í sæti. Stuðningsmenn Everton hafa mætt þessum hugmyndum með nokkurri andstöðu, enda þykir mönnum vænt um gamla heimavöllinn Goodison Park. Hugmyndir eru uppi um að reisa völlinn jafnvel strax árið 2010, en þar hefur stjórn Everton fengið velyrði frá Tesco fyrir 50 milljónum punda til að aðstoða við bygginguna. "Þetta er rosalegt tilboð - tilboð aldarinnar - og ég á ekki von á því að okkur eigi eftir að standa annað eins til boða í framtíðinni," sagði Keith Wyness framkvæmdastjóri félagsins. Hann segir að félagið þyrfti að setja sig í tiltölulega litlar skuldir ef af þessu ævintýri yrði, því líklega myndu safnast um 15 milljónir á því að selja Goodison Park og með því að selja nafnið á nýja leikvangnum í hendur styrktaraðila. Málið mun fara fyrir 30,000 stuðningsmenn Everton á næstunni og þar verður væntanlega kosið um það hvort næsta skref verður tekið í málinu. Wyness segir að það geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir félagið ef það stækki ekki við sig. "Við höfum enn ekki fundið vallarstæði annað en þetta og sannarlega ekki samning eins og þennan. Við myndum ekki skulda mikið eftir að framkvæmdum lyki og við myndum fá leikvang sem yrði miklu ódýrari en sambærilegir leikvangar sem reistir hafa verið undanfarið. Við getum ekki haldið áfram á Goodison, því þar fækkar áhorfendum og innkoman lækkar - þannig að það er engin varaáætlun í þessu sambandi. Menn verða að hafa peninga í kassanum til að vera samkeppnishæfir," sagði Wyness. Stuðningsmenn Everton munu greiða atkvæði sitt í málinu í næsta mánuði og niðurstöðu er að vænta í lok ágúst. Hugmyndin að deila leikvangi með Liverpool hefur verið slegin út af borðinu og þegar hafa verið stofnuð samtök sem kalla sig "Höldum Everton í Liverpool". Ekki nóg með það heldur virðast íbúar Kirkby í jaðri Liverpool margir hverjir alls ekki hrifnir af þeirri hugmynd að hafa knattspyrnuleikvang á svæðinu.
Enski boltinn Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds Enski boltinn „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ Fótbolti „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Enski boltinn KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Sjá meira