Erlent

Tveimur flugskeytum skotið á Ísrael

Líbanskur hermaður hugar að Katyusha flugskeytum.
Líbanskur hermaður hugar að Katyusha flugskeytum. MYND/AFP

Tveimur flugskeytum var skotið á smábæ í Ísrael í dag frá Líbanon. Allt bendir til þess að Palestínumenn standi á bak við flugskeytaárásina og telja ísraelsk stjórnvöld að árásirnar séu gerðar í því skyni að ögra þeim.

Um var að ræða tvö rússnesk Katyusha flugskeyti en samkvæmt ísraelskum stjórnvöldum voru það Palestínumenn sem stóðu á bak við árásirnar en ekki Hezbollah samtökin eins og í fyrstu var talið.

Ísraelsk stjórnvöld segja árásirnar augljóslega gerðar í þeim tilgangi að ögra og þannig hvetja Ísraelsmenn til að svara með hefndarárásum. Ísraelsmenn segjast líta á árásirnar alvarlegum augum en þeir muni hins vegar ekki láta þær draga sig inn í vopnuð átök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×