Erlent

Hérar valda töfum á flugvellinum í Mílanó

MYND/365

Loka þurfti flugvellinum í Mílanó á Ítalíu í dag á meðan tvö hundruð veiðimenn reyndu að klófesta yfir 80 héra sem ítrekað hafa valdið vandræðum á svæðinu. Á síðustum vikum hefur tvisvar komið fyrir að hérar hafi flækst í hjólabúnaði flugvéla við lendingu. Þá hafa þeir einnig valdið truflunum í radarbúnaði flugvallarins.

Veiðimennirnir tvö hundruð gengu um flugvallarsvæðið í morgun klappandi höndum og hrópandi en markmiðið var að fæla hérana í átt að sérstöku neti sem búið var að strengja yfir flugbrautina. Alls náðu veiðimennirnir að klófesta hátt í 40 héra með þessari aðferð.

Hérarnir voru fluttir í sérstökum boxum á friðlýst svæði í nágrenni Milanó þar sem þeim var síðan sleppt lausum á ný. Þar geta þeir eytt ævikvöldinu í ró og næði enda öll veiði stranglega bönnuð á svæðinu og lítil hætta á að þeir verði fyrir barðinu á hjólabúnaði flugvéla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×