Erlent

Hamas vilja að Alan Johnston verði látinn laus úr haldi

Johnston var rænt í mars.
Johnston var rænt í mars.

Hamas samtökin lýstu því yfir í dag að þau myndu gera það sem í þeirra valdi stæði til að fá Alan Johnston, blaðamann BBC, lausan úr gíslingu. Johnston var rænt 12. mars síðastliðinn á Gaza af öfgahópi sem kallar sig Jasish-e-al-Islam, eða her Islams.



Forsvarsmenn BBC sögðu að þeir hefðu heyrt af yfirlýsingunni en þeir hefðu ekki fengið neinar staðfestar upplýsingar um ástand Johnston. Þeir myndu vinna með hverjum sem mögulega gæti fengið hann lausan úr haldi



Fyrr í þessum mánuði bárust palestínskum fjölmiðlum myndband af Johnston. Í myndbandinu lýsti hann því yfir að mannræningjarnir kæmu bærilega fram við hann. Hann væri ekki sveltur og ekki pyntaður. Í myndbandinu talaði Johnston um þjáningar Palestínumanna og lýsti yfir áhyggjum af hernaði Bandaríkjanna og Breta í Írak og Afganistan.

Talið er að frá árinu 2004 hafi 15 blaðamönnum verið rænt í Gaza. Öllum hefur verið sleppt ósködduðum, yfirleitt nokkrum dögum eftir að þeim hefur verið rænt. Johnston hefur verið haldið lengur en öllum öðrum blaðamönnum sem hefur verið rænt á Gaza.

CNN greindi frá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×