Telja hugsanlegt að ETA láti til skarar skríða á næstunni Björn Gíslason skrifar 5. júní 2007 09:25 Frá vettvangi sprengjuárásarinnar í Madríd í fyrra. MYND/AP
Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, hyggst binda enda á rúmlega eins árs vopnahlé á morgun. Telja spænskir fjölmiðlar hugsanlegt að samtökin láti til skarar skríða á næstunni. Aðskilnaðarsamtökin birtu yfirlýsingu í baskneska dagblaðinu Berria í dag þar sem fram kemur að lágmarksskilyrði fyrir friðarviðræðum við stjórnvöld á Spáni séu ekki fyrir hendi. Þá hafi yfirvöld hafi beitt félaga í ETA ofsóknum og pyntingum í kjölfar vopnahlésins. ETA lýsti yfir vopnahléi í mars í fyrra og voru vonir bundnar við að sósíalistastjórn Jose Luis Zapatero næði samkomulagi við samtökin. Hafði Zapatero lýst því yfir að Baskar myndu fá að ráða framtíð sinni sjálfir en skoðanakannanir sýna að minnihluti þeirra er fylgjandi aðskilnaði frá Spáni. Félögum í ETA fannst friðarviðræðurnar á síðasta ári hins vegar litlu skila og því létu samtökin til skarar skríða með sprengjuárás á flugvelli í Madríd í desember í fyrra. Þar létust tveir. Í kjölfarið hættu stjórnvöld öllum viðræðum við samtökin. Leiða spænskir fjölmiðlar líkur að því að samtökin láti til sín taka á næstunni með sprengjuárás en yfir 800 manns hafa látist í fjögurra áratuga blóðugri baráttu þeirra fyrir sjálfstæði Baskalands.
Mest lesið Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent „Fyrir löngu búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla“ Innlent „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Innlent Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningarmerki Innlent Kjartan og Marta út, Björn í tíunda og Friðjón í því ellefta Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Björn kemst ekki til Melaniu Innlent Fleiri fréttir Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Sjá meira